101, Reykjavík (Miðbær)

Tryggvagata 13

83.900.000 KR
Fjölbýli
2 herb.
75 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 75 M²
  • Herbergi 2
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 1
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingarár 2017
  • Lyfta
  • Bílskúr NEI

LÝSING

RE/MAX kynnir í einkasölu glæsilega 2 - 3 herb. íbúð á 5. hæð við Tryggvagötu 13 í hjarta miðborgarinnar.  Íbúðin er í í göngufæri í miðborgina með fallegu útsýni til miðborgarinnar. Birt flatarmál íbúðarinnar er 75,2 fm og þar af er 2,4 fm geymsla í kjallara.  5,7 fm svalir eru í suður.  Tryggvagata 13 er vandað lyftuhús sem var byggt 2017. Glæsilegar innréttingar og fataskápar frá HTH. Hágæða hreinlætistæki frá Laufen og blöndunartæki frá Kludi. Hitalögn í gólfi. Glæsilegir gólfsíðir gluggar. Mikil og góð einangrun er í húsinu.
Nánari upplýsingar um eignina veitir Þorsteinn Ólafs lögg. fasteignasali í síma 842-2212, [email protected].


Hjólastólaaðgengi er í allar íbúðir og sameignarrými hússins. Eignin skiptist í anddyrisgang, stofu, borðstofu og eldhús í alrými, baðherbergi, hjónaherbergi og baðherbergi.  Ibúðin er í dag með einu svefnherbergi en möguleiki er að gera annað herbergi sem í dag er notað fyrir sjónvarp. Free@home stýrikerfi er fyrir ljós og myndavéladyrasíma. Snertilaust lyklaaðgengi er í allar íbúðir í húsinu, sameignarrými og útihurðir.

Hér má skoða eignina í 3D:

Nánari lýsing:
Anddyri með góðum fataskáp frá HTH og parketi á gólfum í alrými.
Opið eldhús er í stofu. Stofan er björt og rúmgóð með gólfsíðum gluggum og parketi á gólfi. Útgengt er út á suðursvalir úr stofunni.  
Á baðherbergi er upphengt salerni, innangeng sturta og flísar á gólfi og að hluta til á veggjum. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara. 
Hjónaherbergi er bjart með sérstöku fataherbergi og gólfsíðum gluggum. Sérstakt sjónvarpsrými er í íbúðinni sem hægt væri að breyta í annað herbergi.
Geymsla er í sameign í kjallara. Hjóla- og vagnageymsla til daglegrar notkunar er á jarðhæð og langtíma hjóla- og vagnageymsla í kjallara.

Inngangar í húsið eru frá Tryggvagötu og Geirsgötu og lyklalaust aðgengi er í sameign og í íbúð. Sameignin er glæsileg með marmara á gólfum á jarðhæð og sjónsteypu ásamt glerlistaverkum eftir Leif Breiðfjörð. Tveir stigagangar eru í húsinu með lyftum og stigahúsum með hljóðdempandi teppi, sjónsteypu og glerhandriðum. 

Úr skilalýsingu hússins þegar því var skilað fullbyggðu 2017:
"Frágangur utanhúss:
Útveggir eru staðsteyptir og einangraðir að innan. Húsið verður með sjónsteypuáferð að utan og er steypa varin með þýskum gæða efnum. Notaður er lítt vatnsdrægur norskur sandur í steypu útveggja til að draga úr vatnsdrægni útveggja.
Þök eru með nettum halla að þakniðurföllum, lögð rakavarnarlagi, einangruð og klædd með öndunarþakdúk af vandaðri gerð.
Svalir á 2. til 5. hæð eru steyptar og svalagólf slípuð og vatnsvarin. Svalahandrið eru úr hertu gleri og led lýsing í handlistum sem lýsir upp glerhandrið að ofan. Gólf þaksvala á 6. hæð verða klædd viði, þar verður handrið úr hertu gleri og viðarveggur sem aðskilur milli svala, hæð veggs að sunnaverðu 1.7 m og að norðan 1.2 m.
Gluggar, útihurðir og gler eru af vandaðri gerð til að tryggja sem minnst viðhald. Gluggar á jarðhæð eru álkerfisgluggar. Gluggar á efri hæðum eru timbur/ál-gluggar. Að utan er ál í gráum lit og breytilegir litir í lóðréttum böndum við opnanleg fög, heitir litir á suðurhlið og kaldir á norðurhlið. Gler er af gerðinni Klima Plus, samlímt/hert öryggisgler og rúður mis þykkar til hljóðdempunar. Ábyrgð framleiðanda á gluggum og gleri er samkvæmt skilmálum Glerborgar. Gluggar í íbúðum á 2.-6. hæð eru gólfsíðir með opnanlegum fögum og hljóðdempandi loftunarristum. Allt gler gefur minnst 41 dB hljóðdempun.
Lóð er 2 m breið sunnan húss og tengist Borgartorgi og er hvort tveggja hannað af landslagsarkitekt. Á lóðinni er snjóbræðsla, hellur og listaverk og á Borgartorgi er snjóbræðsla, hellur, gróður og bekkur.
 
Frágangur íbúða innanhúss:
Íbúðir eru með gólfsíðum timbur/ál gluggum, gluggar eru málaðir hvítir að innan og klæddir gráu áli að utan. Loftunarristar gefa 48 dB hljóðdempun í opinni stöðu og skulu vera opnar til að koma í veg fyrir undirþrýsting í íbúðum. Á öllum íbúðum eru svalir.  
Gólf. Íbúðir eru afhentar fullbúnar með gólfefnum til að tryggja að alls staðar verði frágangur í samræmi við hljóðhönnun. Á votrýmum eru vandaðar flísar á gólfum og undir þeim er fullkomin rakavörn (dúkur í sturtum, kvoða annars staðar og kantborðar í öllum hornum). Á öðrum rýmum er vandað krosslímt viðarparket, nema í íbúðum 0202 og 0203, þar eru flísar á öllum gólfum.
Veggir. Útveggir eru einangraðir að innan, múrhúðaðir, sparslaðir með rakaheldu gifsi, grunnmálaðir  og málaðir með rakaheldri málningu. Léttir milliveggir eru hlaðnir úr Ytong steinum og lagnaleiðir eru klæddar með rakaheldu gifsi. Á flísalögðum veggjum á böðum er gengið frá vönduðu undirlagi til þéttingar (dúkur í sturtum, kvoða annars staðar og kantborðar í hornum). Flísar og fúga eru af vandaðri gerð. Málaðir veggir í votrýmum eru sparslaðir með rakaheldu sparsli og grunnaðir og málaðir, allt efni er rakahelt. Í almennum rýmum eru veggir og loft sandsparslað, grunnað og málað með hálfmattri málningu. Öll málning er af bestu fáanlegum gæðum frá Málningu ehf til að tryggja létt þrif. Allir veggir eru málaðir hvítir.
Loft eru slípuð, sandspörsluð, grunnuð og máluð.
Innihurðir. Hljóðdempandi hurðir frá íbúðum að göngum eru lakkaðar gráar, hljóðdempun er 36 dB, brunavörn EI 30-CS og hurðapumpa er felld inn í hurð að ofan. Hurðir og rennihurðir innan íbúða eru sprautulakkaðar í hvítum lit. Allar hurðir í íbúðum og á göngum eru sérsmíðaðar hjá Víkurási og eru hærri en venja er.
 
Innréttingar:
Í öllum innréttingum er vandað innvols og hágæða lamir og brautir. Innréttingar eru ýmist sprautulakkaðar eða spónlagaðar og ýmist með gripraufum eða nettum höldum.
Eldhúsinnréttingar eru af vandaðri gerð. Undir efri skápum er led lýsing. Innréttingar eru breytilegar, ýmist hvítar mattar, hvítar háglans eða spónlagðar. Víðast er ífræst grip, í viðarinnréttingum er ífræst grip í gegnheilan eikarlista, en fáeinar innréttingar eru með nettum höldum. Borðplötur eru vandaðar úr upplímdum gegnheilum harðviði eða steinborðplötur. Vaskar og helluborð eru felld niður í borðplötur. Öll rafmagnstæki eru frá AEG, af vandaðri gerð. Kæliskápar og uppþvottavélar eru hljóðlát og til innbyggingar, kæliskápar eru með sjálfvirkri afhrímingu í kæli og frysti. Í eldhúsum eru sjálfhreinsandi ofnar og spanhelluborð og háfar með síu yfir helluborðum.
Öll blöndunartæki eru í hljóðflokki 2, með einnar handar stjórnun.
Fataskápar eru í forstofum og herbergjum þar sem við á. Útlit og áferð er almennt sama og í eldhúsi í viðkomandi íbúð. Í flestum íbúðum eru fataherbergi og þar eru opnir skápar með fellislám, föstum slám, skúffum og hillum af vandaðri gerð.
Bað- og þvottahússinnréttingar verða ýmist hvítar háglans, hvítar mattar eða spónlagðar, með ífræstu gripi eða málmgripi. Borðplötur verða breytilegar í samræmi við eldhúsborð og hágæða handlaugar á öllum baðherbergjum. Í sumum íbúðum er gert ráð fyrir sambyggðri þvottavél og þurrkara undir vaskaborði í baðherbergi, í öðrum verður þvottaaðstaða fyrir þvottavél og þurrkara hlið við hlið í baðherbergi og í nokkrum íbúðum er þvottaherbergi. Í öllum baðherbergjum eru krómaðir handklæðaofnar. Í flestum íbúðum er sturta með glervegg og í fáeinum íbúðum er baðkar. Blöndunartæki eru innbyggð og sturta tekin niður úr lofti eða út úr vegg.
Hreinlætistæki eru í hæsta gæðaflokki frá Laufen í Sviss, með þríbrenndum glerjungi sem er léttur í þrifum. Öll blöndunartæki eru þýsk gæðavara frá Kludi. Salerni eru með innbyggðum kassa og hæglokandi setu.
 
Geymslur eru í íbúðum, fullinnréttaðar sem fatageymslur. Auk þess fylgir öllum íbúðum geymsla eða geymsluskápur í kjallara sem er án innréttinga. Rafmagnstengill og loftljós er í hverri kjallarageymslu.
 
Tæknilegar lausnir:

Hitakerfi: Gólfhiti er í öllum íbúðum og í baðherbergjum eru handklæðaofnar. 
Loftræsi-, vatns- og þrifalagnir eru fullfrágengnar í samræmi við lagnateikningar. Forhitari er á heitu neysluvatni. 
Rafmagns- og veikstraumslagnir eru fullfrágengnar í samræmi við teikningar rafhönnuðar.  Í húsinu er hágæðar rofa og tenglaefni frá ABB – Future Linear. 
Lýsing. Innfelld LED lýsing er í íbúðum og sameign. Í íbúðum er óbein LED lýsing á baðherbergjum og öll innbyggð loftljós fylgja. Útilýsing er innfelld LED ljósgjafar og er sérhönnuð lýsing í handriðum á svölum. 
Ljósa og hitastýring í íbúðum er frá ABB, free@home (snjalllausn) stýrir hita og dimmar ljósin. Það er stýring fyrir nútúmaheimilið, þar sem hægt er að stýra heimilinu með rofum eða snjalltæki. Dimmar og töflubúnaður er samrýmd lausn frá ABB og í öllum íbúðum er ABB Welcome myndavéladyrasími.
Í húsinu verður lyklalaust aðgengi.
Búnaður. Öllum íbúðum fylgir reykskynjari tengdur brunakerfi og slökkvitæki.
 
Frágangur sameignar:
Anddyri er stórt og þar er rými fyrir sófa og samveru. Úr anddyri er innangengt í tvo stigaganga. Gólf í anddyri og á göngum jarðhæðar er klætt marmara sem er lagður á hljóðdúk. Í anddyri eru listaverk eftir Leif Breiðfjörð. Aðalinngangur er að sunnan frá Borgartorgi sem er hellulagt og þar er listaverk, bekkur og tré. Að norðan er inngangur frá Geirsgötu í hjólageymslu fyrir fáein hjól/vagna og þar eru póstkassar. Hliðarveggir í anddyri eru sjónsteypuveggir með kristöllum.
Hurðir í sameign. Útihurðir eru fullfrágengnar úr áli og aðalinngangur frá Tryggvagötu er um rennihurð. Allar hurðir í sameign verða sérsmíðaðar og lakkaðar í gráum lit. Í anddyri eru glerhurðir og gluggi verður í hurðum úr stigahúsi og inn á ganga. Í húsinu verður lyklalaust aðgengi.
Stigahús og gangar verða lagðir hljóðdempandi undirlagi og teppi. 
Í kjallara verður hjóla- og vagnageymsla, hleðslusvæði fyrir rafskutlur, bílastæði fyrir fáeinar íbúðir og fáein deilisbílastæði. Gólf, veggir og loft verða að mestu leyti ómeðhöndluð sjónsteypa. Kjallari er hitaður með ofnum. Í kjallara eru geymslur eða geymsluskápar fyrir allar íbúðir.
Sorpgeymsla er á jarðhæð með inngangi frá Geirsgötu. Útveggur er einangraður, múrhúðaður og málaður, en aðrir veggir og loft með sjónsteypuáferð. Þar er gert ráð fyrir ýtarlegri flokkun sorps vegna endurvinnslu.
Í sameign er lýsing fullkláruð.
Lyftur eru af vandaðri gerð frá Kone, mjög hljóðlátar og búnar besta fáanlega dempunarbúnaði. Þær eru með hækkaðri lofthæð til að auðvelda flutninga.
Helstu hönnuðir hússins:
Aðalhönnuður og samræmingarhönnuður, Hús og skipulag, Hildigunnur Haraldsdóttir arkitekt faí.
Sérhönnuðir burðarþols og lagna, Verkfræðistofa Þráinn og Benedikt.
Sérhönnuður rafmagns og veikstraums, Helgi Eiríksson og sérhönnnun lýsingar, Lúmex ehf.
Byggingaraðili:T13 ehf."

Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir fasteigna á söluskrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu. Þorsteinn Ólafs lögg. fasteignasali í síma 842-2212, [email protected].


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. RE/MAX bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af löggiltum fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.