800, Selfoss

Engjaland 4

135.200.000 KR
Fjölbýli
4 herb.
168 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 168 M²
  • Herbergi 4
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sér
  • Byggingarár 0
  • Lyfta
  • Bílskúr NEI

LÝSING

NÁNARI UPPLÝSINGAR FÆRÐU HJÁ GUÐNÝJU ÞORSTEINS Í SÍMA 7715211 EÐA [email protected]

RE/MAX ásamt GUÐNÝJU ÞORSTEINS löggiltum fasteignasala kynnir í einkasölu: Engjaland 4, íbúð 401, björt og falleg þriggja herbergja íbúð á fjórðu hæð með glæsilegu útsýni í lyftuhúsi með bílskýli í bílastæðakjallara í vandaðri nýbyggingu fyrir 55 ára og eldri. Íbúðinni verður skilað fullfrágengin með gólfefnum. Íbúðin er tilbúin til afhendingar október 2024. Frekari upplýsingar um bygginguna er að finna á  Engjaland.is

EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA
VERTU TILBÚIN ÞEGAR ÞÍN DRAUMAEIGN BIRTIST
SMELLTU HÉR - MIKILVÆGT ER AÐ VERÐLEGGJA EIGNINA RÉTT
SMELLTU HÉR OG FÁÐU SÖLUYFIRLIT SAMSTUNDIS


Eignin samanstendur af: Forstofu, tveimur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, þvottahúsi, eldhúsi og stofu sem eru í samliggjandi flæðandi rými með útgangi út á stórar svalir. Bílastæði í bílakjallara fylgir íbúðinni ásamt geymslu. Gólfefni eru vínilparket og flísar í votrýmum.
Samkvæmt Fasteignamati Ríkisins er íbúðin samtals 154m2 ásamt geymslu í sameign 14,6m2. Svalir eru 81,2m2 .

Nánari lýsing:
Forstofa: Er með fataskápum sem ná upp í loft.
Salerni I: Er flísalagt með steini á borði, vaski með skúffum undir, rúmgóðri "walk in" sturtu, ásamt upphengdu salerni. 
Herbergi I: Er með fataskápum sem ná upp í loft.
Herbergi II: Er rúmgott með fataskápum sem ná upp í loft, innangengt er á sér baðherbergi.
Salerni II: Er flísalagt með steini á borði, vaski með skúffum undir, upphengdu salerni, rúmgóðri "walk in" sturtu. Útgengt er á svalir úr baðherberginu þar sem lagt er fyrir heitum potti.
Þvottahús: Er með þvottavéla-innréttingu, skápum ásamt skolvaski.
Eldhús/borðstofa: Undir efri skápum er innfræst led- lýsing, á borðplötum í er steinn sem heitir Meteor Ice frá S. Helgasyni. Í innréttingunni eru vönduðum tæki af gerðinni AEG frá Ormsson, blástursofn, innbyggð uppþvottavél ásamt innbyggðum kæliskáp með frysti. Á eyju er span helluborð með fallegum háfi yfir. Borðstofan er rúmgóð í opnu og björtu rými.
Stofa/alrými: Er í stóru og björtu alrými sem bæði getur rúmað stofu og sjónvarpshol. Útgangur er út á stórar svalir. Í stofunni er arinn. Útsýni er virkilega fallegt. 
Svalir: Gengið er úr stofu á 81,2m2 svalir, gler er að hluta á svalahandriði, flísalagt er á vandaðan hátt. Lagnir eru til staðar fyrir heitum potti.
Geymsla: Er 14,6m2 - nr.0013.
Bílastæði: Er merkt B5 í upphituðum bílastæðakjallara.
Íbúðinni fylgja ýmis þægindi:  
Í íbúðinni er sérstakt loftræstikerfi sem bætir loftgæði og tryggja rétt loftskipti. Innfelld lýsing í öllum rýmum. Mynd-dyrasími. Lagt er fyrir rafhleðslustöð í bílageymslu. Á bílaplani fyrir utan bygginguna eru 19 bílastæði þar af tvö sérmerkt fyrir hreyfihamlaða. Allar íbúðir eru með sérmerkt bílastæði þar af fjórar íbúðir með sérmerkt bílastæði fyrir utan bygginguna og 10 íbúðir með sérmerkt stæði í bílakjallara byggingarinnar.
Þetta er björt og falleg eign með öllum helstu þægindum nútímans

ByggingaraðiliRENY
ByggingarstjóriHúsaverk ehf
Iðn- og lýsingahönnuður: Sólveig Andersen
Hönnun húss og lóðahönnun: Pro-Ark teiknistofa
Verkfræðihönnun: Verkfræðistofan Hnit
Raflagnahönnun: Rafhönnun ehf

Kaupandi greiðir 0,3 % skipulagsgjald sem er innheimt þegar endanlegt brunabótamat liggur fyrir. 

Ítarlegri upplýsingar veitir Guðný Þorsteins. í s:771 5211 eða [email protected] 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Re/Max því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.  

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, 69.900 kr. m.vsk.