276, Kjós

Norðurnes 32

26.900.000 KR
Sumarhús
3 herb.
43 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Sumarhús
  • Stærð 43 M²
  • Herbergi 3
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingarár 1978
  • Lyfta Nei
  • Bílskúr NEI

LÝSING

EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA
NÁNARI UPPLÝSINGAR FÆRÐU HJÁ GUÐNÝJU ÞORSTEINS S: 7715211 EÐA [email protected]


Re/Max ásamt Guðnýju Þorsteins löggiltum fasteignasala kynnir í einkasölu:  Vinalegt sumarhús við Norðurnes 32 í Kjósahreppi sem stendur á 2.722m2 eignarlóð, möguleiki er að stækka húsið eða auka fjölda húsa á lóðinni. Svæðið er lokað með rafmagnshliði (símahlið). Húsið stendur neðan götu. Lóðin er gróin og skógi vaxin er því afar veðursælt á henni, verönd hússins er í há suður með góðu þakskeggi er því virkilega notalegt að sitja úti í kyrrðinni og hlusta á fallegan fuglasöng. 

SMELLTU HÉR OG SJÁÐU MYNDBAND EIGNARINNAR
SMELLTU HÉR OG FÁÐU SÖLUYFIRLIT SAMSTUNDIS

Nánari lýsing.
Bústaðurinn er á einni hæð, komið er inn í huggulegt panilklætt alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa eru sameiginleg.
Herbergin eru tvö, í öðru þeirra er nýlegt hjónarúm en í hinu er koja með nýlegum dýnum.
Eldhús er með helluborði (tvær hellur), bakaraofni, lítilli uppþvottavél ásamt ísskáp.
Stofa/borðstofa eru í huggulegu rými með arni sem kynntur er með geli.
Baðherbergi er með sturtu og glugga með opnanlegu fagi. Á baðherbergi er 100 lt vatnshitakútur.
Geymslur eru tvær.
Húsið er kynnt með rafmagni en auðvelt er að leggja fyrir hitaveitu þar sem lagnir eru þegar ofar í götunni. Húsið er á steyptum stöplum.
Vel hefur verið hugsað um bústaðinn:
2006 - Panill endurnýjaður
2006 - Einangrun endurnýjuð
2006 - Rafmagn endurnýjað
2019 - Vatnslagnir inni í bústað endurnýjaðar (hitavír settur í)
2020 - Rotþró endurnýjuð
2020 - Hjónarúm og dýnur í herbergi endurnýjaðar
2021 - Þakkanntur og rennur endurnýjaðar
Húsinu fylgja húsgögn og leirtau, seljendur munu taka taka persónulega muni. Greitt er í sumarbústaðarfélag 45.000kr á ári.

GOTT ER AÐ SKOÐA EIGNINA VEL - SMELLTU
SMELLTU OG HEYRÐU HVERNIG ÉG GET AÐSTOÐAÐ ÞIG


Nánari upplýsingar færðu hjá Guðnýju Þorsteins. í s: 771 5211 eða [email protected] 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.  

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, 69.900 kr. m.vsk.