190, Vogar

Sjávarborg 8F

76.500.000 KR
Raðhús
5 herb.
103 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Raðhús
  • Stærð 103 M²
  • Herbergi 5
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingarár 2023
  • Lyfta Nei
  • Bílskúr NEI

LÝSING

Guðmundur Þór Júlíusson og Ástþór Reynir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu: Sjávarborg 8F, 190 Vogar eignin telur 103,2 fm fimm herbergja íbúð á jarðhæð á glæsilegum stað í vogunum, Sjávarborg er hverfi í uppbyggingu með glæsilegu sjávarútsýni.

Skipulag telur: Forstofu, stofu, borðstofu/eldhús, fjögur svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús/geymsla. Fallegt útsýni er úr alrými eignarinnar. 

Íbúðir skilast allar fullbúnar (samkvæmt skilalýsingu). Lóð verður jöfnuð og tyrfð. Verandir við bakhlið eru úr timbri og er skjólveggur á milli húsa. Stéttir og bílastæði við aðkomuhlið íbúða eru hellulögð og snjóbræðsla í gangstéttum.
 

Bókið skoðun hjá Gumma Júl í síma 858-7410 eða Ástþór Reynir í síma 899-6753 eða með tölvupósti á netfangið [email protected] eða [email protected]
  • Gólfsíðir gluggar í alrými.
  • Danfoss stýrikerfi fyrir gólfhita.
  • Aukin lofthæð.
  • Fullbúið með gólfefnum, ísskáp m/frysti og uppþvottavél.
  • Lagnaleið fyrir rafmagnshleðslu út á bílastæði.
  • Lagnaleið fyrir heitan pott.
  • Arkitekt húsanna er TEIKNA - Teiknistofa arkitekta.
  • Vandað harðparket Light Cracket Oak 8 mm úr Parka. flísar á baðherbergi.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa er með flísum á gólfum og rúmgóðum fataskápum, hurð frá forstofu inn á gang.
Stofa og borðstofa er í opnu alrými með eldhúsi, rúmgóð stofa með útgengi á sólpall sem klæddur er með fallegu lerki, lofthæð innan eignarinnar á hæsta punkt eru um fjórir metrar og setur það mikinn svip á stofuna. Innfelld lýsing þar sem á við. Timburklæðning á sólpall sem er með skilrúm á milli íbúða.
Eldhús er opið við stofu. Eldhúsinnrétting er ljósgrá melamine með svartri Quartz borðplötu. Með hverri íbúð fylgir span helluborð, ofn, innbyggð uppþvottavél og ísskápur með frysti.
Svefnherbergi eru fjögur talsins þeim fylgja fataskápar í sama lit og efni og er á eldhúsinnréttingu. Parket á gólfum.
Baðherbergi Er flísalagt í hólf og gólf með 60x60 flísum, upphengt salerni, sturtuklefi og innrétting við vask með ljúflokun á skúffum, tengi fyrir þvottavél og þurrkara. 
Geymsla er fyrir ofan baðherbergi (stigi upp á loft fylgir), einnig er möguleiki að nota sem svefnloft, Parket á gólfum.
Verönd frágangur lóðar, Lóð verður jöfnuð og tyrfð. Verandir við bakhlið eru úr timbri (lerki) og er skjólveggur á milli húsa. Stéttir og bílastæði við aðkomuhlið íbúða eru hellulögn og snjóbræðsla er í gangstéttum. Eignir eru afhentar án trjágróðurs á lóð. Bílastæði er fyrir framan hvert hús.

Frágangur innanhúss.
Innveggir eru smíðaðir úr timburgrind klæddir með plötum. Innveggir uppfylla kröfur fyrir lofthljóðeinangrun innbyrðis á milli herbergja innan íbúðareiningar.
Gólf Light Cracket Oak 8 mm, harðparket, úr Parka.
Baðherbergi er flísalagt með 60 x 60 cm flísum, bæði gólf og veggir, en loft er málað. Geymsluloft fyrir ofan  baðherbergi.
Innréttingar eru af vandaðri gerð frá parka, eldhús og baðinnrétting eru úr melamine efni einnig fataskápar sem fylgja með í hverju svefnherbergi. Innihurðar eru hvítar yfirfelldar frá Parka. Rimlagluggatjöld eru fyrir öllum gluggum. Íbúðinni fylgir span helluborð, bakarofn, innbyggð uppþvottavél og ísskápur með frysti. 

Sjávarborg er staðsett í Grænubyggð sem er hverfi sem mun byggjast upp á næstu árum í fallegu, fjölskylduvænu og rólegu umhverfi við sjávarsíðuna. Sérstaklega vel staðsett fyrir þá sem vilja vera í nágrenni höfuðborgarsvæðisins en í rólegu og fjölskylduvænu umhverfi. Vogar er einstaklega barnvænt sveitarfélag og þar er stutt í alla helstu þjónustu og tómstundir.

Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Allar nánari upplýsingar um eignina veita:
Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða [email protected]
Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma 899-6753 eða [email protected]

Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.