**Opið hús fellur niður vegna óviðráðanlegra ástæðna, nýr tími auglýstur síðar ** Berglind Hólm lgfs og RE/MAX kynna: Góð þriggja herbergja íbúð með sérinngangi á 2.hæð í nýlegu litlu fjölbýlishúsi við Klapparstíg. Íbúðin er skráð 73,9 fm. Gengið er í gengum læst hlið með talnalæsingu inn í sameigninlegan garð þar sem gengið er upp að íbúðunum. Íbúðin skiptist í: forstofu, opið rými með eldhúsi og stofu, tvö góð svefnherbergi, baðherbergi, sérþvottaherbergi innan íbúðar og geymslu í sameign. Öll gólf eru flotuð og lökkuð í íbúðinni. Nýverið var garðinum lokað með fallegri viðarskjólgirðingu sem gerir umhverfið í kringum íbúðina en rólegra.
Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteingasali í síma 694-4000 eða [email protected]
Nánari lýsing. Gengið er upp eina hæð um utanáliggjandi stigahús að íbúðinni sem er til vinstri. Forstofa: Komið er inn í góða forstofu með fataskáp. Forstofan er opnast inn í alrýmið að hluta. Eldhús + stofa: Eldhúsið og stofan eru saman í rými. Útgengt er frá rýminu út á góðar austur svalir sem snúa út í garðinn. Eldhúsið er með innréttingu í vinkil með neðri skápum í hnotuútliti og efriskápum rauðum háglans. Stállitur veggháfur er fyrir ofan eldavél. Baðherbergi: Baðherbergið er með innréttingu undir fallegum ofanáliggjandi vaski. Sturtuklefi er í horni. Salernið er upphengt með innibyggðum vatnskassa. Svefnherbergi x 2: Svefnherbergin eru tvö bæði rúmgóð og annað er með fataskáp. Þvottaherbergi: Sérþvottaherbergi er innan íbúðar. Tengi fyrir þvottavél og þurkara. Þvottaherbergið nýtist einnis sem viðbótar geymsla. Geymsla + Hjóla/Vagnageymsla: Í sameign í kjallara hússins er góð sérgeymsla sem fylgir íbúðinni ásamt sameiginlegri hjóla- og Vagnageymslu.
Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða [email protected]