YFIRLIT
-
Tegund Lóð
-
Stærð 5000 M²
-
Herbergi 0
-
Stofur 0
-
Svefnherbergi 0
-
Baðherbergi 0
-
Inngangur Sér
-
Byggingarár 0
-
Lyfta Nei
-
Bílskúr NEI
LÝSING
Erling Proppé & REMAX kynna vel staðsettar 5000 og 5500 fm sumarhúsalóðir við Brekkuheiði í vinsælu og vel skipulögðu sumarbústaðalandi í Brekkuskógi, Bláskógabyggð, 806 Selfossi. Lóðirnar eru í nánd við fallega náttúru og með einstöku útsýni til fjalla. Svæðið er afgirt með símahliði. Heitt og kalt vatn að lóðarmörkum gegn tengigjaldi.Byggingarheimildir: Á hverri lóð er heimilt að reisa eitt frístundahús/sumarhús og eitt aukahús. Heildarbyggingarmagn skal miðast við nýtingarhlutfallið 0.03. sem felur í sér að á lóð sem telur 5000 fm/0,5 ha má heildarbyggingarmagn vera 150 fm. Hámarksstærð aukahúss er 30 fm sem telst með í heildarbyggingarmagni lóðar. Ekki má byggja nær árbakka en 50 m.
- Sjá deiliskipulag frístundabyggðar við Brekkuheiði og Vallárveg ásamt breytingar á nýtingarhlutfalli:
- Deiliskipulag við Brekkuheiði og Vallárveg - NýtingarhlutfallStaðsetning:Frábær staðsetning í um 80 mín. akstursfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu. Fallegar gönguleiðir í kring, m.a. að Brúarfossi. Í næsta nágrenni er að finna allar helstu náttúruperlur Suðurlands eins og Gullfoss og Geysi og stutt í alla helstu þjónustu s.s sundlaugar í Úthlíð, Laugarvatni, Borg í Grímsnesi og Reykholti. Nokkrir golfvellir eru í næsta nágrenni, m.a. við Geysi, Flúðir, Öndverðanes og Kiðjaberg. Þá er hægt að kaupa veiðileyfi í mörgum vötnum í kring.
Lausar lóðir eru eftirfarandi: - 19, 21, 23, 25, 27.
- 58, 60, 62, 64.
- 78, 80, 82, 84.
- 98,100, 102,104.
Helstu kostnaðartölur frá eiganda (vsk bætist við):-Tengigjöld við heita- og kaldavatns veitur og inntaksskápur 998.000,- innheimt þegar óskað er eftir tengingu en ekki síðar en tveimur árum eftir undirskrift kaup- eða leigusamnings.
-Árgjald fyrir kalt vatn 33.697,- innheimt í júní ár hvert.
-Hitaveita, mánaðargjald er það sama og er hjá OR-veitum á svæðinu, er núna fyrir 3 mínl 12.269,- hver líter eftir 3 er 2.454,- mánaðargjald hitaveituhemils er 1.477,-. Hitaveitugjöld og hemilsgjald er innheimt annan hvern mánuð fyrir 2 mánuði í senn.
-Árlegt vegagjald á eignarlóðir er 25.820,-.
Öll ofangreind verð eru án vsk. Við heitt vatn og hemilsgjald á hitaveitu bætist 11% vsk. Við kalt vatn og vegagjald bætist 24% vsk. Öll verð eru bundin vísitölu neysluverðs, og miðast ofangreind verð við 588,3 stig.
Tengigjöld fyrir rafmagn fara í gegnum Rarik.
Lóðarleigusamningur:Möguleiki er á því að gera langtíma lóðarleigusamning um lóðirnar. Leigutaki öðlast þá rétt til þess að byggja á lóðunum í samræmi við skipulagsskilmála svæðisins en afla þarf samþykkis leigusala á byggingaverktaka.
-Árgjald landleigu er 136.743,- innheimt í júní ár hvert. Landleiga er undanþegin vsk.
-Grunngjald leigusamnings til 25 ára er 1.990.000,-
Öll verð eru bundin vísitölu neysluverðs og miðast ofangreind verð við 588,3 stig
Allar nánari upplýsingar veitir:
Erling Proppé, löggiltur fasteignasali í síma 690-1300, [email protected]-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.