191, Vogar

Hvassahraun 8

38.900.000 KR
Sumarhús
1 herb.
45 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Sumarhús
  • Stærð 45 M²
  • Herbergi 1
  • Stofur 2
  • Svefnherbergi 0
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sér
  • Byggingarár 2020
  • Lyfta Nei
  • Bílskúr NEI

LÝSING

RE/MAX kynnir í einkasölu: Fullbúin sumarhús með mikla möguleika við Hvassahraun 8, Vogum.  Um ræðir tvö falleg hús byggð 2020 sem hvort um sig eru 22,6 fm. ásamt 6 fm. sólpalli.  Eignirnar skiptast í bjart opið rými með svefnaðstöðu, eldhús og salerni með sturtu. Einnig er aukahús, um 15 fm. sem er óskráð.   Stórt bílaplan er fyrir framan. Fallegt útsýni og góð staðsetning við útjaðar höfuðborgarsvæðisins.  Húsin eru skráð á öllum helstu bókunarsíðum og fær góð meðmæli viðskiptavina, möguleiki kaupanda er að yfirtaka það og fylgi þannig kaupum.   

Nánari upplýsingar gefur Guðrún Lilja Tryggvadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 867-1231, [email protected]

KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SKOÐAÐU SUMARHÚS Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR OG HÉR MÁ SMELLA TIL AÐ SKOÐA AUKAHÚS


Nánari lýsing:
Húsin tvö eru á steyptum sökkli og eru klædd að innan með harðpressuðum gifsplötum og timburklædd/panel að utan með brunavörn.
Baðherbergi er með loftræstingu og tengi fyrir þvottavél.  Eigin borhola er komin á lóðina og með nægu vatni. Búið er að tengja allar lagnir, rafmagn og setja upp rotþró. Stjórnstöð til staðar sem stýrir öllum hita, rafmagni og vatni. 

Aðalhúsin tvö eru fullbúin öllu sem þarf til útleigu og hefur verið í góðum rekstri með góðar leigutekjur.  Möguleiki er að yfirtaka reksturinn og bókunarkerfi.  Allt er til staðar, þ.e. svefnsófi og sófaborð, flatskjár, kommóða, eldhúsborð og stólar og eldhús með ísskáp, helluborði og örbylgjuofni.  Fallegt og slitsterkt vínilparket er á gólfum og góð hljóðeinangrun.  Vatn er upphitað og rafmagnsofnar til staðar.  Ljósleiðari er til staðar úti í götu en undanfarið hefur verið notast við 5G net.  Auðvelt er að stækka húsin og breyta þeim í íbúðarhús. 

Aukahúsið/aðstöðuhús er um 15 fm. að stærð, ekki að fullu klárað en þar er opið rými með svefnaðstöðu og möguleika á að setja upp eldhús- og baðherbergisaðstöðu.  Lagnir fyrir vatn og rafmagn er komið upp að húsinu en eftir að tengja inn en búið er að klæða og einangra að utan og setja steypt gólf.

Húsin standa á 4.590 fm. leigulóð og heimilt er að byggja allt að 154 fm. til viðbótar svo ýmsir möguleikar eru fyrir hendi, sem dæmi 116 fm. aðalhús og 40 fm. aukahús, eins og byggingarreglugerð heimilar. Gistileyfi liggur fyrir.

Góð meðmæli viðskiptavina má sjá með því að smella hér


Nánari upplýsingar gefur Guðrún Lilja Tryggvadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 867-1231, [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.