262, Reykjanesbær

Skógarbraut 925

44.400.000 KR
Fjölbýli
3 herb.
89 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 89 M²
  • Herbergi 3
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingarár 1978
  • Lyfta Nei
  • Bílskúr NEI

LÝSING

Þorsteinn Ólafs, lögg. fasteignasali og RE/MAX kynna í einkasölu bjarta og rúmgóða þriggja herbergja 86,7 fm íbúð á 2. hæð (nr. 0202) við Skógabraut 925 í Reykjanesbæ. Eigninni fylgir 2,8 fm geymsla (0113) og samtals stærð séreignar er því 89,5 fm. Nánari upplýsingar um eignina veitir Pétur Ásgeirsson  löggiltur fasteignasali í síma 893-6513 / [email protected]


Skipulag: Forstofa með hvítum fataskáp. Eldhús er opið inn í stofu með borðkrók og þar er útgengi út á svalir. Í eldhúsinnréttingu er helluborð, ofn og háfur. Ísskápur og uppþvottavél er innbyggt í innréttingu. Sér sjónvarpshol er í íbúðinni. Tvö rúmgóð svefnherbergi með skápum. Baðherbergi er með sturtu, upphengdu salerni, innréttingu, handklæðaofni og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Parket er á gólfum en flísar á gólfi í baðherbergi og veggjum að hluta.  Stigar og stigapallar á 2. og 3. hæð eru teppalagðir, og anddyri á 1. hæð er með vínildúk.  Hjólageymsla í sameign á jarðhæð.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. RE/MAX bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af löggiltum fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir fasteigna á söluskrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu. Þorsteinn Ólafs lögg. fasteignasali í síma 842-2212, [email protected].