815, Þorlákshöfn

Vesturbakki 5 (102)

19.900.000 KR
Atvinnuhúsnæði
68 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Atvinnuhúsnæði
  • Stærð 68 M²
  • Herbergi 0
  • Stofur 0
  • Svefnherbergi 0
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingarár 2023
  • Lyfta Nei
  • Bílskúr NEI

LÝSING

Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali (s:662-6163 netfang: [email protected]) kynnir geymsluhúsnæði að Vesturbakka 5, á besta stað við höfnina í Þorlákshöfn

Nánari lýsing: Húsið skiptist í 12 einingar, 67,3 - 68,2 m2 að birtu flatarmáli. Allar einingar eru með ræstivask og salerni. Byggingin er á einni hæð. Lóðin er malbikuð, gert ráð fyrir einu bílastæði fyrir framan hverja starfseiningu.


Uppbygging húss: Húsið er byggt ofan á steypta sökkla.
Gólfplata: Hefðbundin staðsteypt plata, einangruð að innan með gólfhita. Neysluvatnslagnir eru lagðar samkv. verkfræðiteikningm, rör í rör.
Útveggir/ þak / þakkantur / burðarvirki:
Allir útveggir og þak hússins eru úr yleiningum, samlokueiningar frá Kingspan. Burðarvirki er límtré. Litur klæðninga að utanverðu er RAL7016 og að innan RAL 9010. Þakkantur er einfaldur, stálklæddur í sama lit og þakefni með utanáliggjandi álrennum og niðurfallsrörum í sama lit. Mænishæð er 6,5 metrar.
Gluggar og hurðir: Iðnaðarhurðir eru frá viðurkenndum og þekktu framleiðanda í góðum gæðum, 380cm x 380cm, litur RAL 7016, og rafmótoropnun. Gönguhurðir og gluggar eru úr viðhaldsfríu PVC plasti með tvöföldu einangrunargleri. Litur RAL 7016.
Frárennslis og neysluvatnslagnir: Skólp‐ og regnvatnslagnir eru fullfrágengnar og tengdar fráveitukerfi í götu. Salerni eru fullfrágengin í hverri starfseiningu. Gólfniðurfall er fyrir innan allar innkeyrsluhurðir. Deilikistur fyrir neysluvatn frágengnar í hverri starfseiningu og tengt úr henni í viðkomandi viðtaka: salerni og mögulega eldhúsinnréttingu undir stiga. Brunaslanga frágengin og tengd. Niðurföll af malbikuðum plönum frágengin og tengd fráveitukerfi.
Hitakerfi: Gólfhitakerfi sem er innsteypt í botnplötuna á járnagrind komið í hverja starfseiningu, deilikista með hringrásarkerfi tengd í hverri einingu. Kerfi stjórnað með handvirkum ofnloka.
Rafmagn: Aðaltafla með mælum fyrir hverja starfseiningu frágengin í inntaksrými. Greinatafla frágengin í hverri starfseiningu með einum þriggja fasa tengli við hliðina. Tenglar á nokkrum stöðum í hverri starfseiningu skv. grunnhönnun raflagnahönnuðar. Full lýsing (LED) í hverri starfseiningu skv. grunnhönnun raflagnahönnuðar sem uppfyllir viðkomandi reglur. Raflagnir lagðar í aðgengilegum kapalstigum, auðvelt er að breyta ljósum, slökkvurum, tenglum og slíku ef þurfa þykir. Útiljós við hurðir á hverri starfseiningu sem hægt er að stjórna frá viðkomandi einingu og tengist viðkomandi mæli (ekki sameign). Gert er ráð fyrir tengibúnaði vegna hleðslu rafbíla við hverja einingu.
Lóð: Lóð afhendist malbikuð. 
Virðisaukakvöð hvílir á húsinu. Ef kaupandi yfirtekur vsk kvöð er verðið 19,9 milljónir. EF Kaupandi tekur EKKI yfir vsk kvöð er verðið 22,6 milljónir.
Skipulagsgjald: Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0,3% af væntanlegu brunabótamati.

Byggingin verður í notkunarflokki 1. samkv. byggingareglugerð en um er að ræða geymslur í þeim flokki. Skil hússins miðast við ÍST51:2021 BS4 – Fullgerð bygging. A:T:H þetta er nýr staðall um skil á byggingarstigum húsa. 

Allar nánari upplýsingar veitir Bjarni Blöndal, löggiltur fasteignasali í síma: 662-6163 eða á email: [email protected]