104, Reykjavík (Vogar)

Súðarvogur 9b

86.900.000 KR
Fjölbýli
3 herb.
108 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 108 M²
  • Herbergi 3
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingarár 2024
  • Lyfta
  • Bílskúr NEI

LÝSING

BÓKIÐ EINKASKOÐUN Í SÍMA 696-0226 - ÞORSTEINN

Þorsteinn Yngvason, lögmaður/löggiltur fasteignasali, hjá RE/MAX fasteignasölu, kynnir í sölu:
Nýjar og glæsilegar þriggja herbergja íbúðir í fallegu fjölbýlishúsi á besta stað að Súðarvogi 9, 104 Reykjavík. Stæði í bílageymslu fylgja öllum íbúðum. Gólfhiti. Fallegt útsýni frá flestum íbúðum og sér þvottahús. Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar samhliða kaupsamningi.

Íbúð 308: Glæsileg þriggja herbergja íbúð á 3. hæð, ásamt geymslu og stæði í bílageymslu. Tvö baðherbergi og sér þvottahús. Skráð stærð 104,3 fm, þar af íbúð 98,4 fm og geymsla 5,9 fm.

Nánari lýsing - Ath. myndir eru af íbúð 301:
Anddyri: Fataskápur upp í loft. Mikið skápapláss.
Stofa/borðstofa: Í samliggjandi rými með eldhúsi. Útgengt út á 7,2 fm svalir.
Eldhús: Falleg eldhúsinnrétting með eyju. Spanhelluborð í eyju og háfur yfir. Bakaraofn í vinnuhæð.
Þvottahús: Flísar á gólfi. Innrétting undir þvottavél og þurrkara. Skolvaskur.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum að hluta, upphengt salerni, sturta með glerskilrúmi, baðinnrétting og handklæðaofn.
Hjónaherbergi: Fataskápur upp í loft. 13,5 fm.
Herbergi/skrifstofa: Rennihurðar inn í herbergið. Fallegt útsýni frá rýminu. 7,4 fm.
Geymsla: Í sameign. Merkt 0023
Stæði í bílageymslu: Merkt B06

Helstu kostir við frágang:
  • Fallegar sérsmíðaðar innréttingar frá Voke III. Mikið skápapláss og allir skápar ná upp í loft.
  • Stórir gluggar í íbúðum og rýmin því afar björt.
  • Gólfhiti í öllum íbúðum.
  • Við hönnun hússins er tekið mið af því að lágmarka viðhald. Húsið er einangrað að utan, klætt með fallegri álklæðningu og þá eru gluggar og hurðar ál-tré.
  • Gert er ráð fyrir lagnaleið að hverju stæði fyrir möguleika á rafhleðslustöð
Almennt um húsin:
Súðarvogur 9 og 11 eru fjölbýlishús með þremur stigahúsum með lyftu; samtals 46 íbúðir. Inngangar eru frá Súðarvogi og Drómundarvogi og um inngarð. Geymslur í kjallara fylgja hverri íbúð. Stæði í bílakjallara fylgja flestum íbúðum. Vagna- og hjólageymslur eru í sameign.

Arkitektar og aðalhönnuðir: Tendra arkitektar ehf.
Verkfræðihönnun: VSÓ Ráðgjöf ehf.
Hljóðráðgjöf: Myrra hönnunarstofa ehf.
Brunahönnun: Lota ehf.
Byggingaraðili: Viðskiptavit ehf.

Umhverfið:
Húsin eru staðsett í Vogabyggð í Reykjavík sem er einstakt og nýstárlegt hverfi. Vogabyggð er nýtt hverfi í uppbyggingu þar sem eldra iðnaðarhverfi víkur fyrir nútímalegri byggð fjölbýlishúsa. Hverfið er frábær kostur fyrir þá sem kjósa að búa í umhverfi sem býður bæði upp á borgarbrag og í senn sterka tengingu við náttúruna. Hjóla- og göngustígar liggja meðfram ströndinni sem og upp í Elliðaárdal. Þá er Laugardalurinn innan seilingar.

Frekari upplýsingar veitir:
Þorsteinn Yngvason, lögmaður/löggiltur fasteignasali, 696-0226 eða [email protected]