YFIRLIT
-
Tegund Fjölbýli
-
Stærð 214 M²
-
Herbergi 6
-
Stofur 2
-
Svefnherbergi 4
-
Baðherbergi 2
-
Inngangur Sér
-
Byggingarár 2004
-
Lyfta Nei
-
Bílskúr JÁ
LÝSING
RE/MAX / Brynjar Ingólfsson kynnir: Stórglæsilega 214 m², 6 herbergja, efri sérhæð í mjög fallegu tvíbýlishúsi við Súlunes á Arnarnesi með tvöföldum bílskúr.
- Stór steypt innkeyrsla og fjölda bílastæða
- Fallegt útsýni
- Aukin lofthæð er í eigninni
- Gólfhiti er í eigninni
- Glæsilegur arinn
- Vandaðar innréttingar og tæki og háar innihurðir.
- Hiti er í tröppum upp á hæðina. SKOÐAÐU EIGNINA Í 3D HÉRLýsing eignar:
Forstofa: flotað gólf og fataskápar.
Hol: parketlagt og með þakglugga yfir.
Gestasalerni: parketlagt og með glugga. Innrétting með graníti á borði.
Samliggjandi stofur: rúmgóðar, bjartar og parketlagðar með útgengi á stórar svalir til suðurs og vesturs. Útsýni til sjávar úr stofum.
Eldhús: opið við stofu, parketlagt, innrétting með graníti á borðum. Vönduð tæki og innbyggð uppþvottavél.
Svefngangur: parketlagður og bjartur með útgengi á svalir til austurs. Þakgluggi.
Þrjú barnaherbergi: öll rúmgóð og parketlögð. Fataskápar í einu.
Hjónaherbergi: stórt, parketlagt og með fataskápum á heilum vegg. Útgengi á svalir til suðurs.
Fataherbergi: var sjónvarpshol áður og er auðvelt breyta aftur eða gera að 5 svefnherberginu.
Þvottaherbergi: flotað gólf, gluggi og nýjar innréttingar (2023).
Baðherbergi: með glugga, stórt og flísalagðir veggir og gólf. Baðkar með sturtuaðstöðu, vönduð tæki og stór innrétting með graníti á borðum.
Bílskúr: tvöfaldur með stórri innkeyrsluhurð og epoxy á gólfi. Rafmagnsopnari á bílskúrshurð. Inngönguhurð á hlið hússins. Heitt og kalt vatn er í bílskúr.
Lóðin: er 1.740 fermetra eignarlóð, ræktuð og frágengin með stórri steyptri innkeyrslu og stéttum fyrir framan húsið. Hiti er í innkeyrslu. Baklóðin er að mestu villtur mói, sem þarfnast ekki viðhalds.
Húsið að utan: er mjög fallegt, fullfrágengið og hvítmálað. Að utan er húsið í góðu ástandi.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali í síma 666 8 999 / [email protected]