105, Reykjavík (Austurbær)

Drápuhlíð 10

61.900.000 KR
Fjölbýli
2 herb.
61 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 61 M²
  • Herbergi 2
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 1
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingarár 1949
  • Lyfta Nei
  • Bílskúr NEI

LÝSING

Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali (s:662-6163/[email protected]) og RE/MAX kynna fallega, mikið endurnýjaða 2ja herbergja íbúð á efstu hæð í fjórbýli við Drápuhlíð 10,105 Reykjavík. Íbúðin er skráð hjá FMR 61,9fm en hluti íbúðar er undir súð og gólfflöturinn er því stærri en uppgefnir fm. Frábært útsýni, Perlan, Hallgrímskirkja, sjávarsýn. 

Smellið hér til að fá söluyfirlit

Nánari lýsing:
Komið er inn í sameign með teppum á stigagangi.
Hol er parketlagt, þaðan er gengið inn í önnur rými íbúðarinnar.
Eldhús með innréttingu með plássi fyrir uppþvottavél, gott vinnupláss, parket á gólfi.
Stofan er parketlögð, útgengt á rúmgóðar suður-svalir.
Svefnherbergið er með fataskáp, útgengt út á svalir, parket á gólfum.
Baðherbergi er með baðkari og sér sturtu, upphengt wc, handklæðaofn, flísar á gólfi.
Skriðloft er yfir íbúðinni.
Þvottahús er í sameign inn af forstofu. Þar inn af er hitakompa sem nýtt er fyrir vagna/hjól o.þ.h.
Garður er skjólgóður, stór og gróinn til suðurs og vesturs, tekinn í gegn 2018.

Samkv. seljanda er búið að fara í eftirfarandi framkvæmdir á síðustu árum: 
2007: endurgerðar svalir. 2016: húsið steinað að utan, þakkantur og þakrennur. 2017: stigagangur teppalagður. 2018: skipt um rafmagnstöflu, rafmagn endurnýjað að hluta, innstungur og rofar. 2022: endurnýjað dren og skólplagnir, lagnagrind, neysluvatn, stofnlagnir úr kjallara og upp á hæðir. 

Örstutt í leikskóla, grunnskóla og Menntaskólann við Hamrahlíð. Eignin er í göngufæri við miðbæinn, Kringluna og útivistarsvæði í Öskjuhlíð. Stutt í strætóstoppistöðvar, verslanir og þjónustu.

Allar upplýsingar um eignina veitir Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali í síma 662 6163 eða [email protected]
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunarskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. RE/MAX fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlufall af fasteignamati. 1.Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal. 3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. 4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá 69.900kr