200, Kópavogur

Dalbrekka 2

62.900.000 KR
Fjölbýli
2 herb.
70 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 70 M²
  • Herbergi 2
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 1
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingarár 2019
  • Lyfta Nei
  • Bílskúr NEI

LÝSING

RE/MAX og Þorsteinn Yngvason, lögmaður / löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu fallega og nýlega tveggja herbergja endaíbúð á 6. hæð að Dalbrekku 2 í Kópavogi. Aðeins tvær íbúðir á hæðinni. Frábært útsýni frá stofu og svölum. Íbúðin er rúmgóð og þá fylgir stæði í lokaðri bílageymslu.

Íbúðin skiptist í andyri, svefnherbergi, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi og geymslu. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 70,1 fm, þar af er íbúðin 64,9 fm og geymslan 5,2 fm.


Nánari lýsing:
Anddyri: Parket á gólfi og fataskápur.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum að hluta, upphengt salerni, sturta með glerskilrúmi, baðinnrétting og handklæðaofn. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Eldhús: Í samliggjandi rými með stofu. Parket á gólfi. Falleg innrétting, innfelld uppþvottavél og spanhelluborð.
Stofa: Opið og bjart rými. Parket á gólfi. Útgengt út á svalir. Frábært útsýni frá stofu og svölum.
Svefnherbergi: Parket á gólfi og fataskápur. Fallegt útsýni frá herberginu.
Geymsla: Í sameign - 5,2 fm. Mikil lofthæð í geymslu.
Bílastæði: Sérmerkt bílastæði í lokuðu : B151

Annað:
Eignin er frábærlega staðsett, en öll þjónusta rétt innan seilingar.  Stutt er í t.d. Bónus, bakarí, veitingastaði og apótek. Þá eru samgöngutengingar góðar og stutt í ýmsa útivistarmöguleika s.s. Fossvogsdal, Öskjuhlíð og Nauthólsvík. Heilsugæslan, Tónlistarhús Kópavogs og Gerðarsafn ásamt annari þjónustu í Hamraborg er í göngufæri.

Allar frekari upplýsingar veitir Þorsteinn Yngvason, lögmaður / löggiltur fasteignasali, í síma 696 0226 eða [email protected]