112, Reykjavík (Grafarvogur)

Bakkastaðir 141

119.900.000 KR
Parhús
4 herb.
150 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Parhús
  • Stærð 150 M²
  • Herbergi 4
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingarár 2000
  • Lyfta Nei
  • Bílskúr

LÝSING

RE/MAX, ásamt Guðlaugu Jónu lgf. og Garðari Hólm lgf. kynna:
Einstaklega fallegt og vel skipulagt parhús á einni hæð við Bakkastaði 141, Reykjavík. Mjög snyrtilegur garður er við húsið og er sólpallur beggja megin við húsið. Heitur pottur er á sólpalli sunnan megin við húsið í góðu skjóli. Tveir geymsluskúar norðan megin við húsið.
Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er eignin 150,5 fm og þar af bílskúr 39,7 fm. 

Falleg eign sem vert er að skoða með frábærum gönguleiðum í kring og nálægð við golfvöll.


Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi og góðum fataskápum. Úr forstofu er innangengt í bílskúr.
Eldhús með viðarinnréttingu og dökkri borðplötu með góðu skápa- og vinnuplássi. Tengi fyrir uppþvottavél og ísskáp, bakarofn er í vinnuhæð.  Eyja er með skúffum og gaseldavél er í eyjunni. Parket á gólfi. 
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskápum og parketi á gólfi.  
Herbergi II&III eru rúmgóð með parketi á gólfi. 
Hol er nýtt í dag sem sjónvarpshol og er með parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Viðarinnrétting með góðum skápum og handlaug.  Einnig er baðkar og sturtuklefi. Opnanlegur gluggi er á baðherbergi.
Borðstofa/Stofa er samliggjandi opið rými við eldhús og er mjög bjart og rúmgott. Mikil lofthæð er í alrými. Þaðan er útgengt á stóra norðurverönd og út í garð. Parket á gólfi. 
Þvottahús er með flísum á veggjum, tengi fyrir þvottavél og þurrkara og opnanlegum glugga. 
Bílskúr er 39,7 fm og gengið er í hann úr forstofu. Geymsluloft er í bílskúr. Flísar á gólfi og rafdrifin hurð. Þar er heitt og kalt vatn og hiti. 
Bílaplanið og stéttin er að hluta til upphitað en búið er að leggja fyrir snjóbræðslu í bílaplanið.


Nánari upplýsingar um eignina veita:
Guðlaug Jóna lgf. í gegnum [email protected] eða s. 661-2363
Garðar Hólm lgf. í gegnum [email protected] eða s. 899-8811