108, Reykjavík (Austurbær)

Sogavegur 220

190.900.000 KR
Einbýli
9 herb.
248 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Einbýli
  • Stærð 248 M²
  • Herbergi 9
  • Stofur 3
  • Svefnherbergi 6
  • Baðherbergi 3
  • Inngangur Sér
  • Byggingarár 1962
  • Lyfta Nei
  • Bílskúr

LÝSING

Fasteignasalarnir Vernharð Þorleifsson og Magga Gísladóttir kynna rúmgóða og vel skipulagða 183.4 fm efri sérhæð og ris með bílskúr á þessum frábæra stað í smáíbúðarhverfinu ásamt fallegri 3ja herbergja íbúð á jarðhæð sem er á sér fastanúmeri.
Fjölskylduvænt og reisulegt hús sem hefur fengið gott viðhald, gróinn snyrtilegur suður-garður. Eign sem gefur af sér sérstakan sjarma.
Hæð, ris og bílskúr er skráð 183.4 fm samkvæmt FMR og íbúðin á  jarðhæðinni 65,2 fm. Samtals 248,6 fm.
Valmaþak á húseign.

Miðhæðin skiptist í forstofu, hol/gang, gestabaðherbergi, stofu, borðstofu, sjónvarpsstofu, eldhús og svefnherbergi.
Rishæðin skiptist í þrjú svefnherbergi, aðalbaðherbergi og geymslu.
Í kjallara er sameiginlegt þvottaherbergi.


Frekari upplýsingar veita Vernharð Þorleifsson löggiltur fasteignasali í síma 699-7372 / [email protected] og Magga Gísladóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-7494 / [email protected]
Kíktu í heimsókn til okkar á Facebook eða á Instagram

Nánari lýsing á eign:
Miðhæð:
Forstofa með fatahengi og úr forstofu er gengið niður í sameiginlegt þvottaherbergi og hitainntaksrými, eins er sérinngangur utanfrá í þvottaherbergi.
Hol/gangur þaðan sem gengið er í önnur rými eignar.
Gestabaðherbergi með vask og er gluggi á baðherbergi. Auka herbergi.
Rúmgóð og björt stofa sem rennur saman við borðstofu. . Afar falleg rennihurð með gleri sem er upprunaleg. Skilur að gang og stofu.
Eldhús er rúmgott með gluggum á tvo vegu. Útsýnið gerist vart betra en úr þessu eldhúsi. Snyrtileg eldhúsinnrétting með efri og neðri skápum og er gott skápapláss, gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingu. Hægt er að loka fram á ganginn með rennihurð.
Svefnherbergi með glugga á tvo vegu.
Rishæð:
Steyptur stigi er upp á efri hæð
og er stór gluggi þar sem gefur góða birtu inn í gang.
Komið er uppá pall þaðan sem gengið er í önnur rými efri hæðar.
Rúmgott aðalbaðherbergi með baðkari, snyrtilegri innréttingu í kringum vask, vegghengt klósett.
Þrjú rúmgóð svefnherbergi með innbyggðum fataskápum úr tekk og er útgengi á rúmgóðar suður-svalir úr hjónaherbergi.
Lítil geymsla er á efri hæð undir súð.
Allar hurðar eru afsakaplega fallegar tekkhurðar.
Garðurinn er fallegur og í góðri rækt. Berjarunnar sem gefa vel af sér af sólberjum, rifsberjum og hindberjum. Tveir ræktunarkassar.
Tvöfaldur rúmgóður bílskúr sem er byggður 2011, tvær rafdrifnar hurðar, heitt og kalt vatn, gólfhiti, geymsluloft er yfir hluta af bílskúr. Þessi bílskúr er draumur bíla- og útivistarfólks. Góð aðkoma er frá Leynigerði.
Sameiginlegt þvottaherbergi er í kjallara og er sérinngangur í kjallara.
Gólfefni: Parket, dúkur, flísar og teppi á gólfum eignar.

Íbúð á jarðhæð: 

Íbúð skiptist í: Forstofu, stofu, hjónaherbergi, barnaherbergi, baðherbergi og geymslu. Innangengt í sameiginlegt þvottahús.
Nánari lýsing á eign:
Komið er inn í forstofu. Þar er fatahengi og lítil geymsla. Þaðan er gengið inn á gang þar sem tengir önnur rými. Á ganginum er góður skápur, innfeldur með ágætis plássi. Eldhús með nýlegri hvítri innréttingu. Hvítar subway flísar og rými fyrir uppþvottavél. Stofa með fallegum gluggum. Rúmgott svefnherbergi með tvöföldum fataskáp. Auka herbergi. Baðherbergi með sturtu og opnanlegan glugga. Innangengt úr forstofu í þvotthús sem er sameiginlegt með efri hæðinni. Fljótandi parket og flísar á gólfum og fallegar tekk hurðar.

Húsið hefur fengið mjög gott viðhald undanfarin ár. Skipt hefur verið um þakjárn, glugga og steining lagfærð þar sem hefur þurft. Rafmagnstafla er nýleg.