101, Reykjavík (Miðbær)

Vesturvallagata 5

74.900.000 KR
Hæð
4 herb.
81 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Hæð
  • Stærð 81 M²
  • Herbergi 4
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingarár 1933
  • Lyfta Nei
  • Bílskúr NEI

LÝSING

Opið hús: 03. júlí 2024 kl. 17:00 til 17:30.

Opið hús: Vesturvallagata 5, 101 Reykjavík. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 3. júlí 2024 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali og RE/MAX fasteignasala kynna vel skipulagða, fjögurra herbergja íbúð á fyrstu hæð í fallegu húsi á eftirsóttum stað við Vesturvallagötu 5, 101 Reykjavík. Íbúðin er töluvert uppgerð og húsið hefur fengið reglulegt viðhald í gegnum árin og var nýlega múrviðgert og málað.

Eignin skiptist í forstofu, stofu/eldhús, þrjú svefnherbergi og baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara, sér geymsla. Eignin er skráð hjá Þjóðskrá Íslands 81,7m2.

Fasteignamat 2025 verður 67.550.000kr.

Nánari lýsing
Forstofa/gangur er með parket á gólfi. 
Stofan/eldhús er bjart rými með parket á gólfi, góð lofthæð, eldhúsinnréttingin er með innbyggðri uppþvottavél, bökunarofn í vinnuhæð, helluborð og háfur.  
Hjónaherbergið er bjart og rúmgott með parket á gólfi, rúmgott fataherbergi.
Barnaherbergin tvö eru er rúmgóð og björt með parket á gólfi og vönduðum fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, góð innrétting, bæði baðkar og walk-in sturta, handklæðaofn, gólfhiti. 
Gengt er inn í sérgeymslu úr garði.

Húsið hefur fengið gott viðhald að sögn eiganda
Árið 2000 var byggt ofan á húsið efstu tvær hæðirnar. Árið 2011 var húsið múrviðgert. Árið 2012 var húsið og þak hússins málað. Árið 2013 var stigangur í sameign málaður og eldhúsið fært inn í stofu og barnaherbergi gert í stað gamla eldhússins. Árið 2014 var skipt um teppi í stigagangi á sameign hússins. Árið 2017 voru frárennslis lagnir myndaðar og allt var í topp standi. Árið 2018 var baðherbergið endurnýjað sem og allar ofnlagnir og ofnar. Árið 2023 var hús múrviðgert og málað.

Sameign hússins er mjög snyrtileg og húsið fallegt að sjá. Baklóðin er sérlega falleg, í lokuðu skjólgóðu porti. 

Betri staðsetning á höfuðborgarsvæðinu fyrir þá sem vilja vera nálægt bæjarlífi miðbæjarins er vandfundin. Nálægð við góðar samgönguæðar tengja svo hverfið við alla staði borgarinnar og stutt er í alla helstu þjónustu.

Allar upplýsingar um eignina veitir Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali í síma 662 6163 eða [email protected]
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0.5% - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 59.900.