201, Kópavogur

Fensalir 4

92.500.000 KR
Fjölbýli
3 herb.
134 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 134 M²
  • Herbergi 3
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingarár 2000
  • Lyfta Nei
  • Bílskúr

LÝSING

Opið hús: 02. júlí 2024 kl. 17:30 til 18:00.

Opið hús: Fensalir 4, 201 Kópavogur, Íbúð merkt: 02 02 02. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 2. júlí 2024 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.

Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu kynnir : Mjög rúmgóð 3ja herbergja íbúð á annarri  hæð  með glæsilegu útsýni til suðvesturs. Birt stærð íbúðar er 134 fm og þar af er bílskúr 32 fm. Aðeins er gengið upp tæplega hálfa hæð að íbúðinni. Í eigninni eru tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, stofa og sér þvottaherbergi. Útsýnið frá íbúðinni er yfir að Garðabænum og vestur eftir Kópavoginum. 

Hér getur þú gengið í gegnum eignina í 3D: Ýtið hér

// Hús málað 2019
// Þak málað 2022
// Stór bílskúr

Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Komið er inn í rúmgott forstofuhol sem er einskonar miðja íbúðarinnar. Náttúrusteinflísar eru á gólfi og tvöfaldur beyki fataskápur nær upp í loft.
Eldhús + borðkrókur: Eldhúsið er með beyki innréttingu með efri og neðri skápum, hvítar  flísar eru á vegg á milli skápa. Innan af eldhúsinu er góður borðkrókur sem nýtist einnig sem borðstofa. Fallegt útsýni er frá borðkróknum. Náttúrusteinflísar eru á gólfi.
Stofa: Opið er frá borðkróknum yfir í setustofuna. Frá setustofunni er útgengi á góðar suðvestur útsýnissvalir. Parket er á gólfi.
Baðherbergi: Baðherbergið er rúmgott með flísum á gólfi og á veggjum. Beyki innrétting er undir vaski og við hlið spegils. Bæði er baðkar og sér sturtuklefi í rýminu.
Svefnherbergi: Parket á gólfi með stórum fataskáp sem nær upp í loft.
Barnaherbergi: Rúmgott með parket á gólfi.
Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi og vinnuborði.
Geymsla: Geymsla fylgir íbúðinni  í sameign. Geymslan er 6,9 fm.
Bílskúr: Mjög rúmgóður bílskúr með stóru geymslulofti. 

Nánari upplýsingar gefur Pétur Ásgeirsson  löggiltur fasteignasali í síma 893-6513 / [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.