103, Reykjavík (Kringlan/Hvassal)

Skógarvegur 8

84.900.000 KR
Fjölbýli
2 herb.
79 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 79 M²
  • Herbergi 2
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 1
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingarár 2021
  • Lyfta
  • Bílskúr NEI

LÝSING

REMAX og Jón G. Sandholt kynnir í einkasölu glæsilega tveggja herbergja 79,6m2 ibúð, merkt 101, á jarðhæð með afgirtum 40 m2 sérafnotareit sem snýr í suð/suðvestur. Eignin telur forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, 40 m2 sérafnotareit, hjónaherbergi, baðherbergi, þvottahús, bílastæði í bílakjallara og 5,9m2 sérgeymslu í sameign, gólfhiti er í allri íbúðinni. 

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Jón G. Sandholt, löggiltur fasteignasali, í síma 777-2288 eða [email protected].

Nánari lýsing:

Forstofa er með parket á gólfi og fataskáp.
Eldhús er með vandaðri innréttingu með eyju, Quartz steinn á borðum og eyju(alla leið í gólf) einnig á milli efri og neðri skápa, Airforce spanhella með innbyggðri viftu frá Ormsson, innbyggður ísskápur í eldhúsi ásamt vínkæli í eyju frá Heimilistæki. 
Stofa/borðstofa mynda eitt rými, parket á gólfum og aðgengi út á afgirtan sérafnotareit sem snýr til suðurs/suðvesturs. Gardínur eru frá Sólar gluggatjöldum.
Hjónaherbergi er rúmgott með parket á gólfum og sér fataherbergi. Gardínur og myrkvagardínur frá Sólar gluggatjöldum
Baðherbergi er flísalagt að hluta, upphengdu salerni, innbygðum svörtum blöndunartækjum í sturtu frá Tengi og vandaðri innréttingu með Quartz stein og frístandandi handlaug.
Þvottahús er inn af eldhúsi með flísum á gólfi og skápum.
Sérgeymsla er í sameign og telur hún 5,9m2, eigninni fylgir einnig sameiginleg hjóla og vagnageymsla.
Stæði í bílageymslu merkt B-39 fylgir eigninni.

Skógarvegur 6-8 eru tvö fjögurra hæða hús sem standa ofan á steyptum, sameiginlegum kjallara með geymslum og bílastæðum. Húsið er steinsteypt, eingangrað að utan með steinull og klætt að stærstum hluta með álklæðningu, timburklæðning er inná flestum svölum. Allir gluggar eru ísteyptir timbur-álgluggar með K-gleri. Stigahús eru teppalögð en andyrishús flísalögð með hálkufríum flísum.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Jón G. Sandholt, löggiltur fasteignasali, í síma 777-2288 eða [email protected].

----------------------------------------------------------------------- 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila  
    Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati 
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar 
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.