YFIRLIT
-
Tegund Fjölbýli
-
Stærð 99 M²
-
Herbergi 3
-
Stofur 1
-
Svefnherbergi 2
-
Baðherbergi 1
-
Inngangur Sameig.
-
Byggingarár 1991
-
Lyfta Nei
-
Bílskúr NEI
LÝSING
Guðrún Lilja lögg. fasteignasali og RE/MAX kynna í einkasölu: Vel skipulögð og björt þriggja herbergja 99,4 fm. eign á þriðju og efstu hæð í góðu fjölbýlishúsi við Hörgsholt 31 Hafnarfirði. Einstaklega fallegt útsýni er til suðurs úr stofu. Íbúðin er skráð 93,6 fm. og skiptist í forstofu, eldhús, tvö rúmgóð svefnherbergi, björt stofa- og borðstofa með útgengt út á góðar suð/vestur svalir og baðherbergi. Sérgeymsla 5,8 fm. er staðsett í sameign ásamt hjóla- og vagnageymslu.
Falleg og björt eign, góð staðsetning þar sem stutt er í alla helstu helstu þjónustu og verslanir, fallegar gönguleiðir ofl.
KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU EIGN Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR
FÁÐU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR
Nánari lýsing:Forstofa er flísalögð með fataskáp.
Eldhús er flísalagt með hvítri innréttingu. Helluborð og bökunarofn. Gott skápapláss og tengi fyrir þvottavél.
Svefnherbergin eru tvö, mjög rúmgóð og björt. Parket á gólfum.
Stofa- og borðstofa er í opnu og björtu rými með útgengt út á suðvestur svalir. Parket á gólfum.
Baðherbergi er með sturtubaðkari og hvítri vaskinnréttingu með spegli. Góður opnanlegur gluggi, dúkur á gólfum og vegg að hluta. Einnig er tengi fyrir þurrkara.
Sérgeymsla er staðsett í sameign um 5,8 fm. og einnig er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla staðsett í sameign.
Garður er sameiginlegur, stór og gróinn.
Sameign snyrtileg, nýlegt teppi á stigagangi. Nýr dyrasími með myndavél.
Bílastæði sameiginleg fyrir framan hús.
2020: Íbúðin var heilspörsluð og máluð, sett nýtt harðparket og listar. Sett var ný vaskinnrétting á baðherbergi. Í eldhúsi er nýlegur ofn, helluborð og vaskur.
Skipt hefur verið um glugga og gler að hluta.
Nánari upplýsingar gefur Guðrún Lilja Tryggvadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 867-1231, [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.