YFIRLIT
-
Tegund Fjölbýli
-
Stærð 137 M²
-
Herbergi 3
-
Stofur 1
-
Svefnherbergi 2
-
Baðherbergi 1
-
Inngangur Sér
-
Byggingarár 1952
-
Lyfta Nei
-
Bílskúr JÁ
LÝSING
RE/MAX og Ingi Þór Löggilltur fasteignasali kynna: Sóltún 3,230 Reykjanesbær.Vel staðsett, þriggja herbergja efri hæð með sér inngang og stakstæðum bílskúr, samtals 137,1fm. Eign skiptist í: forstofu, sameiginlegt þvottahús með neðri hæð, stigauppgang, gang, stofu, eldhús, baðherbergi, tvö svefnherbergi og bílskúr.
Nánari lýsing: Komið er inn í forstofu um sér inngang, úr forstofu er gengið inn í sameiginlegt þvottahús með neðri hæð. Steyptur stigi liggur upp á efri hæð, á stiga er eldra teppi. Gengið er inn á gang með eldra parketi á gólfi af efri stigapalli. Eldhús er með hvítri, líklega upprunalegri innréttingu, flísum á gólfi, frístandandi eldavél, efri og neðri skápum og borðkrók. Stofa er rúmgóð með eldra parketi á gólfi. Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hluta, baðkari og vaska skáp. Svefnherbergi eru tvö bæði nokkuð rúmgóð, eldri innfelldir skápar í öðru herberginu, eldra parket á báðum herbergjum. Úr öðru svefnherberginu er gengt út á svalir. Bílskúr er séreign efri hæðar, með nýlegri innkeyrsluhurð, án gólfefna og hefur verið nýttur sem ókynnt geymsla í nokkurn tíma. Malar aðkeyrsla er fyrir framan skúr. Sameiginleg kompa er undir húsinu baka til og er þar lagnaleið út í bílskúr. Húsið er klætt báru að utan og þak virðist í nokkuð góðu ástandi.
Eignin er vel staðsett, stutt í helstu þjónustu, Holtaskóla, Myllubakkaskóla, heilsugæslu og margt fleira.
Nánari upplýsingar veitir Ingi Þór. Löggiltur fasteignasali
698-4450/[email protected]