109, Reykjavík

Álfabakki 12

90.000.000 KR
Atvinnuhúsnæði
231 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Atvinnuhúsnæði
  • Stærð 231 M²
  • Herbergi 0
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 0
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingarár 1988
  • Lyfta Nei
  • Bílskúr NEI

LÝSING

RE/MAX kynnir í einkasölu fallega og vel skipulagða skrifstofuhæð við Álfabakka 12 í Reykjavík.  Sjö útleigueiningar.  Um er að ræða 231,3 fm skrifstofuhúsnæði á 2. hæð við göngugötuna í Mjódd ásamt tilheyrandi hlutdeild í sameign allra. Tilvalið fyrir ýmsa skrifstofustarfssemi, heilsutengda starfsemi,  nuddara, sjúkraþjálfara, læknastofur eða aðra skrifstofustarfsemi.  Lyfta er í húsnæðinu.  Gott aðgengi og næg bílastæði í göngufæri. 
Nánari upplýsingar um eignina veitir Þorsteinn Ólafs lögg. fasteignasali í síma 842-2212, [email protected].


Húsnæðið er í dag með 7 útleigueiningum, lokuðum skrifstofum, sem eru við útveggi byggingarinnar ásamt fundarherbergi, eldhúsi og tvenn salerni, annað með sturtu og hitt er utan rýmis. Dúkur er á gólfum. Kerfisloftplötur eru í lofti og er lofthæð rúmir 3 metrar. Tölvulagnir eru í öllum rýmum, tvenn loftræstikerfi og í stærri rýmum er inntak fyrir kalt og heitt vatn.

Viðhald húsnæðis. Árið 2018 fóru fram gagngerar endurbætur á þaki og þakkanti hússins og endurnýjun glugga þriðju hæðar . Húsið málað að utan og  í sameign. Árið 2019 fóru fram framkvæmdir á lóðinni sunnan megin við húsið, hitalagnir  endurnýjaðar í gangstéttum og nýjir ljósastaurar settir, lóð hellulögð og breytt í núverandi ástand.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. RE/MAX bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af löggiltum fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir fasteigna á söluskrá. Myndataka innifalin. Verðmet eign þína þér að kostnaðarlausu. Hafðu samband við Þorstein Ólafs lögg. fasteignasala í síma 842-2212. Tölvupóstur: [email protected].