203, Kópavogur

Gnitakór 4

179.900.000 KR
Einbýli
5 herb.
273 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Einbýli
  • Stærð 273 M²
  • Herbergi 5
  • Stofur 2
  • Svefnherbergi 4
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sér
  • Byggingarár 2005
  • Lyfta Nei
  • Bílskúr

LÝSING

RE/MAX /  Júlían J. K. Jóhannsson Lgf. (sími 823 2641 & [email protected]) kynnir: Glæsilegt einbýlishús með innbyggðum bílskúr, byggt 2005, við Gnitakór 4, Kópavogi. Eignin er á tveimur hæðum, samtals skráðir fermetrar skv. FMR eru 273,9 fm þar af er innbyggður bílskúr 51,5 fm. Húsið er hannað af Hómeiru Gharavi og Þorgeiri Þorgeirssyni og skartar góðri lofthæð, björtum stofum með opnu eldhúsi, 4 góð svefnherbergi, tvennar svalir í suður, innbyggður bílskúr auk tvennra baðherbergja.


Smelltu hér til að skoða húsið í 3D.


Smelltu hér til að sækja söluyfirlit. 



- 5 herbergja einbýlishús með möguleika á aukaíbúð.
- Stór innbyggður bílskúr með góðri lofthæð.
- Tvennar svalir í suður og bjartar stofur með aukinni lofthæð.
- Húsið er byggt 2005.
- Tvö baðherbergi, þvottahús og snjóbræðsla í bílaplani. 



Gengið er inn á 1. hæð sem telur forstofu með góðum skáp, bílskúr sem er innangengt í úr þvottahúsi, gestasnyrtingu með sturtu, rúmgott svefnherbergi þar sem hægt er að setja upp eldhúsaðstöðu, gluggalausa geymslu sem er óskráð en töluvert stór og þvottahús.
Á efri hæð er bjart alrými með góðri lofthæð sem telur tvær setustofur, borðstofu og eldhús. Baðherbergi með baðkari og sturtu og þrjú svefnherbergi. Gólfhiti er í öllum gólfum.


Nánari lýsing:
Um er að ræða fallegt einbýlishús á tveimur hæðum með góðu útýsni í Kórahverfinu.
Komið er inn í forstofu með fallegum flísum á gólfi.
Úr forstofu er gengið inn í hol 1. hæðar en þaðan er gengið inn í rúmgott herbergi sem hægt væri að setja upp sem íbúðarherbergi, baðherbergi með sturtu, stórt gluggalaust geymsluherbergi,  þvottahús og innaf því er innangengt í 51,5 fm innbyggðan bílskúr með mikilli lofthæð. 
Í þvottahúsi er góð innrétting og vaskur. Renna er úr baðherbergi á efrihæð niður í þvottahúsið á neðri hæðinni.

Gengið er upp á efri hæð um steyptan stiga, stór og fallegur gluggi er í stigarými og eikarpartket á gólfi.

Á efri hæð er bjart alrými, stofur, borðstofa, eikarparket á gólfum, mikil lofthæð, innbyggð lýsing og fallegt útýsni. Útgengt er á tvennar góðar suður svalir úr stofum.
Eldhúsið er rúmgott með eyju, snyrtileg ljós innrétting, dökkur granít á eldhúsi og borðkrók. 
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, falleg innrétting, sturta og baðkar. Opnanlegur gluggi er inni á baðherbergi og þvagskál.
Hjónaherbergið er með góðum fataskápum og eikarparket á gólfi.
Barnaherbergin eru tvö er með aukinni lofthæð, fataskáp og eikarparket á gólfi. 


Fallegur og vel hirtur garður er umhverfis húsið, fallegt útsýni yfir borgina og aðrar náttúruperlur.


Frábær staðsetning, stutt í alla þjónustu, skóla og leikskóla og frekari þjónustu.


Frekari upplýsingar veitir Júlían J. K. löggiltur fasteignasali í síma 823 2641 eða á netfanginu [email protected].


Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0.5% - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.-