YFIRLIT
-
Tegund Fjölbýli
-
Stærð 119 M²
-
Herbergi 4
-
Stofur 1
-
Svefnherbergi 3
-
Baðherbergi 1
-
Inngangur Sameig.
-
Byggingarár 2003
-
Lyfta Já
-
Bílskúr NEI
LÝSING
RE/MAX ásamt Þórdísi Björk Davíðsdóttur löggiltum fasteignasala kynna:Bjarta, rúmgóða 119,1fm 4-5 herbergja íbúð ásamt stæði í 3ja bíla bílageymslu. Eignin er vel staðsett neðst í Andrésbrunninum sem liggur við ÚlfarsárdalinnÞvottahús er innan íbúðar - Skjólgóðar suður-svalir - Mögulega 4 herbergi þar sem að geymsla er innan íbúðar
Húsfélag er í endurnýjun á þaki og greiðir seljandi áætlaðan kostnað íbúðar.Vel skipulögð eign í barnvænu hverfi í nálægð við náttúru og alla helstu þjónustu. Sæmundarskóli er í göngufæri og íþróttasvæði FRAM í Úlfarsárdal.
Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 119,1 fm sem skiptist í íbúðarrými 119,1 fm og er geymslan innan íbúðar með glugga og því hægt að nýta sem fjórða svefnherbergið.
Íbúðin er merkt 0201 og stæði í bílageymslu merkt B02
Nánari lýsing eignar: Í
forstofunni er fataskápur og parket á gólfi.
Þvottahús var endurnýjað 2022 og er rúmgott með hvítri innréttingu, veggföstum snúrum, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, vaski á borðplötu og flísum á gólfi.
Geymsla /skrifstofa er með parketi á gólfi, góðum skáp með hillum og hefur verið nýtt sem hluti geymsla og hluti skrifstofa. Einnig er hægt að
nýta það sem fjórða herbergið innan íbúðar.Barnaherbergin tvö og eru í góðri stærð með góðum fataskápum, gluggum til norðurs og parketi á gólfi.
Hjónaherbergið er rúmgott með góðum fataskápum, gluggum suðurs og harðparketi á gólfi.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, með upphengdu salerni (endurn. 2023), baðkari með sturtugleri og góðri innréttingu. Innréttingin er upprunaleg en blöndunartæki á bæði í sturtu og við vaskinn hafa verið endurnýjuð.
Stofan, borðstofan og eldhúsið eru í opnu björtu rými með parketi á gólfi og útgengt er á rúmgóðar suður svalir úr borðstofunni.
Eldhúsinnréttingin er L-laga með góðu skáparými og tengi fyrir uppþvottavél. Innrétting og tæki eru upprunaleg utan blöndunartækja.
Allar innréttingar eru úr mahogony utan þvottahússins.
Íbúðinni fylgir
stæði í 3ja bíla bílageymslu og er bæði góð þvotta aðstaða og geymslu aðstaða innst í bílastæði þar sem eru hillur.
Geymsla íbúðar sem fyrr segir innan íbúðar.
Í sameign er vagna- og hjólageymsla. Lyfta er í húsinu og er sameignin og aðkoman öll hin snyrtilegasta.
Garður er sameiginlegur Anrésbrunni 9-17 og er tyrfð lóðin sunnan megin en steypt bílastæði norðan megin. Húsfélag er fyrir Andrésbrunn 9-17 og er það deildar og hlutfallaskipt gjöldin í heildina sbr. Eignaskiptayfirlýsingu.
Um er að ræða vel staðsetta eign þar sem stutt er í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu.Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Þórdís Björk löggiltur fasteigna- og skipasali s: 862-1914 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið [email protected]Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. - Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
- Ertu í söluhugleyðingum? Smelltu HÉR til að fá frítt verðmat. Heimasíða RE/MAX Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: · Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða) og 1,6% (ef lögaðilar)af heildarfasteignamati.
· Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
· Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
· Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk