210, Garðabær

Hofakur 5

120.000.000 KR
Fjölbýli
4 herb.
157 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 157 M²
  • Herbergi 4
  • Stofur 2
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingarár 2006
  • Lyfta
  • Bílskúr NEI

LÝSING

Opið hús: 21. september 2024 kl. 13:30 til 14:00.

Opið hús: Hofakur 5, 210 Garðabær, Íbúð merkt: 03 02 03. Eignin verður sýnd laugardaginn 21. september 2024 milli kl. 13:30 og kl. 14:00.

Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu kynnir í einkasölu fallega og vel skipulagða 157,3 fm 5 herbergja íbúð við Hofakur 5, 210 Garðabæ. Plankaparket á gólfum, granít eldhúsborðplötur og suðursvalir með svalalokunum. Íbúð er á 2. hæð til hægri í mjög snyrtilegu og viðhaldslitlu lyftu-fjölbýli. Sérgeymsla er 15,4 í sameign og sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu ásamt aðgengi að þvottaaðstöðu og dekkjageymslu innan bílageymslu. Samtals er stærð á íbúð og geymslu 157,3 fm. 

Hér getur þú gengið í gegnum eignina í 3D: Ýtið hér

// Stórt alrými.
// Yfirbyggðar svalir.
// Góð Staðsetning.
// Bílakjallari.
// Hægt að bæta við 4 svefniherberginu


Nánari lýsing eignarinnar: 
Inngangur í  snyrtilegan stigagang með lyftu og aðgengi beint að bílakjallara.
Forstofa íbúðar er með fataskáp.
Hjónaherbergi er rúmgott og bjart með góðum fataskápum. 
Barnaherbergin eru tvö.  Bæði mjög björt og annað þeirra með fataskáp.
Eldhús er með vandaða eldhúsinnréttingu ásamt granít borðplötum og góðum eldhústækjum.
Borðstofan er björt með tveimur stórum gluggum. 
Stofa íbúðar er björt og rúmgóð með útgengi út á 8 fm suður-svalir með svalalokunum. Gott útsýni til sjávar.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með baðinnréttingu úr eik, upphengdu salerni, baðkari og sturtu.
Þvottahús innan íbúðar er með vask og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. 
Gólfhiti er bæði á baðherbergi og þvottahúsi, gólfefni þar eru flísar. Gólfefni íbúðar að öðru leyti er eikarplankaparket.
15,4 fm sérgeymsla er í kjallara sameignar. Sérmerkt bílastæði fylgir íbúð í lokuðum bílakjallara sameignar ásamt sameiginlegri bílaþvottaaðstöðu og dekkjageymslu. 
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla er á jarðhæð sameignar með útgengi út í garð.  Sameign íbúðar er mjög snyrtileg og vel viðhaldið af umsjónarmanni. 

Athygli er vakin á því skv. 2. mgr 14. gr. laga nr 70/2015 um sölu fasteigna að fasteignasali er tengdur seljendum fjölskylduböndum.

Nánari upplýsingar gefur Pétur Ásgeirsson  löggiltur fasteignasali í síma 893-6513 / [email protected]
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.