271,

Reykjahvoll 22

190.000.000 KR
Einbýli
7 herb.
300 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Einbýli
  • Stærð 300 M²
  • Herbergi 7
  • Stofur 3
  • Svefnherbergi 4
  • Baðherbergi 3
  • Inngangur Sér
  • Byggingarár 2023
  • Lyfta Nei
  • Bílskúr

LÝSING

Magnús Már Lúðvíksson Löggiltur fasteignasali og RE/MAX fasteignasala kynna í einkasölu: 

Nýtt og glæsilegt 300 fm einbýlishús á tveimur hæðum ásamt bílskúr að Reykjahvoll 22 í Mosfellsbæ. 
Húsið afhendist fullbúin að utan með grastorfum á þaki og tilbúin til innréttinga að innan ásamt grófjafnaðri lóð.

Möguleiki á aukaíbúð á neðri hæð // 

Bókið skoðun hjá Magga í síma 699-2010 eða [email protected]

Efri hæð: Anddyri, Stofu, borðstofa, eldhús, baðherbergi, hjónaherbergi með sérbaðherbergi, herbergi, rúmgóðar svalir ásamt bílskúr 
Neðri hæð: Geymsla, sjónvarpsrými, herbergi, herbergi, herbergi, þvottahús, baðherbergi ásamt óútgröfnu rými 50 fm. 
Frábært skipulag. Mikil lofthæð er í húsinu sem gerir það bjart og skemmtilegt. Frábær staðsetning þar sem stutt er í náttúruna og gönguleiðir. Húsið stendur á 723,3 m² eignarlóð.

Eignin er skráð 300 m2, þar af efri hæð 158,6 m2, neðri hæð 109,8 m2 og bílskúr 31,6 m2. óútgrafið undir bílskúr ca 50fm.
Gólfhitakerfi í húsinu. Á 1.hæð kemur gólfhiti í plötu en á 2.hæð er gólfhiti í einangrunarmottu. Nota skal hitastyrikerfi.

Utanhúss: 
Einbýli á 2. hæðum ásamt bílskúr. Sökkull, gólfplata og útveggir húss á neðri hæð verði úr járnbentri steinsteypu að mestu. 
Útveggir 2. hæðar og þar sem ekki jarðvegsfylling er hefðbundnir timburveggir, útveggir á neðri hæð einangrast að utan og klætt að utan með límdri ál panilklæðningu og Lunawood/thermowood timbri að hluta (Sjá heimasíðu)
þak er úr timbursperrum og með krossvið þar ofan á, Ofan á krossvið kemur ábræddur tjörudúkur 2 lög. Þar ofan á kemur takkadúkur til notkunar undir torf og jarðvegsfiltdúkur.
Á efri hæð eru timburveggir einangraðir milli timburstoða með steinull. Að utan kemur krossviður, klæðningakerfi sem klæðist svo með Burðarvirki innveggja er einangraðir með steinull og klæddir með tvöföldu gipsi á báðum hliðum.
Gluggar og hurðir: Ál/tré gluggar með tvöföldu K-gleri, ál/tré inngangshurðar/svalahurðar, ál rennihurðir ásamt bílskúrshurð.

Innanhúss: Tilbúið til innréttinga
Dúkaloft fullklárað 
Raflagnateikningar\ Raflögn, hússtjórnunarkerfi ásamt lýsingarhönnun frá Lúmex (tækjaskápur í bílskúr).
Lagnir: Frágangur neyslu og fráveitulagna er miðaður við samþykktar skipulagsteikningar. Inntak hita og neysluvatns klárt.
Neysluvatn lagt í gólf og veggi samkvæmt teikningum. Hita-, rafmagns og vatnslagnir eru lagðir í gólfplötu og steypta innveggi samkvæmt teikningum. 
Húsið er hitað upp með hefðbundnu gólfhitakerfi með hitastýringa Stofninntök neysluvatnslagna tengd og full frágengin.

Byggingargjöld og gatnagerðargjald eru greidd.
Seljandi greiðir heimtaugagjöld fyrir rafmagn og hita, en kaupandi greiðir 0,3% skipulagsgjald sem er innheimt við endanlegt brunabótarmat.
Kaupandi skal fá nýja byggingastjóra og meistara að verkinu við afhendingu og sér um úttektir eftir afhendingu eignar nema um annað sé samið.
Allar byggingarteikningar afhendast samþykktar frá skipulagsnefnd Mosfellsbæjar til kaupanda // Kaupandi greiðir fyrir allar breytingar á teikningum sem hann kann að óska eftir. 
Grunnteikningar gætu tekið smávægilegum breytingum á byggingartíma.

Nánari upplýsingar veitir
Magnús Már Lúðvíksson
Löggiltur fasteignasali 
Sími 699-2010 eða [email protected]