104, Reykjavík (Vogar)

Dugguvogur 8

86.900.000 KR
Fjölbýli
4 herb.
118 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 118 M²
  • Herbergi 4
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingarár 2020
  • Lyfta
  • Bílskúr NEI

LÝSING

Opið hús: 21. september 2024 kl. 15:00 til 15:30.

Opið hús: Dugguvogur 8, 104 Reykjavík, Íbúð merkt: 04 01 04. Eignin verður sýnd sunnudaginn 8. september 2024 milli kl. 13:00 og kl. 13:30.

RE/MAX /  Júlían J. K. Jóhannsson löggiltur fasteignasali (sími 823 2641 & [email protected]) kynnir:  Fallega og vel skipulagða 4ra herbergja íbúð með aukinni lofthæð og sérafnotareit með palli í vestur sem snýr inn í inngarð. Dugguvogur 8, íbúð 104, er byggð 2020 og er íbúðin skráð 118,7 fm þar af sérgeymsla 11,6 fm og með íbúðinni fylgir sérstæði, merkt E04, í bílageymslu. 



Smelltu hér til að sækja söluyfirlit


Smelltu hér til að skoða eignina í 3D umhverfi 



- Aukin lofthæð sem gefur íbúðinni einstakt yfirbragð.
- Góður sérafnotareitur í vestur með viðar palli, sem snýr inn í inngarð.
- 3 góð svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu.
- Sérbílastæði í bílageymslu og rúmgóð 11,6 fm sérgeymsla.



Nánari lýsing:
Gengið er inn í andyri með góðum skápum.
Eldhús opið inn í stofu og borðstofu. Innréttingar í eldhúsi eru frá þýska framleiðandanum Nobilia. Eldhús með tækjum og búnaði frá Electolux, keramik helluborði, blástursofn, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Vifta með kolasíu er í innréttingum. 
Inn af alrými er svefnherbergjagangur með góðu hjónaherbergi með skápum auk tveggja barnaherbergja með skápum, filmur í gluggum.
Rúm gott baðherbergi er á svefnherbergjagangi með tengi fyrir þvottvél og aðstöðu fyrir þurrkara. Góð sturta og innrétting frá þýska framleiðandanum Nobilia.
Alrými saman stendur af eldhúsi, borðsstofu og stofu með beinu útgengi á vestur pall sem snýr inn í inngarð.


Sérbílastæði í bílakjallara fylgir eigninni merkt E04. 
Sérgeymsla í sameign skráð 11,6 fm.


Leiktæki fyrir börn í inngarði. 


Almennt um húsið:
Dugguvogur er staðsteypt hús, einangrað og klætt að utan sem tryggir að viðhald sé í lágmarki, byggt 2020. 


Vogabyggð er nýtt hverfi þar sem eldra iðnaðarhverfi hefur vikið fyrir nútímalegri byggð fjölbýlishúsa.  Hér er um að ræða skjólsæla perlu á höfuðborgarsvæðinu í nálægð við hafið og náttúruna. Hjóla- og göngustígar liggja rétt hjá meðfram ströndinni sem og upp í Elliðaárdal. Einnig er Laugardalurinn innan seilingar. Steinsnar frá Vogabyggðinni við Elliðaárnar er að finna eitt besta útivistarsvæði borgarinnar og nær allt frá Elliðaárósum upp að Elliðavatni. Á svæðinu er fjöldi göngu- og hjólastíga. Í skógi vöxnum dalnum er að finna gott skjól í rjóðrum og tilvalið að fara lautarferð.


Bókið skoðun í síma 823-2641 eða á [email protected] - Júlían J. K. löggiltur fasteignasali


Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0.5% - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.-