210, Garðabær

Grímsgata 6

102.900.000 KR
Fjölbýli
4 herb.
111 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 111 M²
  • Herbergi 4
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingarár 2022
  • Lyfta
  • Bílskúr NEI

LÝSING

Opið hús: 16. september 2024 kl. 17:00 til 17:30.

Opið hús: Grímsgata 6, 210 Garðabær, 19. nýjar íbúðir tilbúnar til afhendingarstað. Allar eignir verða sýndar mánudaginn 16. september 2024 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu kynnir í einkasölu: Grímsgata 6, 210 Garðabær.
 
Vel skipulagðar, flottar og vel staðsettar 19. íbúðir í útjaðri íbúðarbyggðar í Urriðarholti og í mikilli nálægð við útivistar- og náttúrusvæðið í Heiðmörk.
 
Allar íbúðir skilast fullbúnar með gólfefnum. Allar innréttingar eru sérsmíðaðar hjá Gerher í Litháen sem er þjónustað af HBH Byggir ehf. Um er að ræða vandaða framleiðslu úr melamin efni frá Egger sem er sérstaklega endingagott og slitsterkt. 

Allar íbúðir eru tilbúnar til afhendingar við kaupsamning.

Nánari um eign 01 0302 : Eignin er fjögurra herbergja herbergja íbúð á 3. hæð merkt  0302, birt stærð 103,9 fm. Eigninni tilheyrir geymsla á 1. hæð merkt 0107, birt stærð 7,5 fm. Eigninni tilheyra svalir merktar 0308. Birt heildarstærð séreignar er 111,4 fm. 

Bókaðu skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 eða með tölvupósti á netfangið [email protected]
 
Sjá má skilalýsingu, verðlista og upplýsingar inn á heimasíðu verkefnisins: Grimsgata.is
 
Stærðir eru frá 90,0  fm. – 138,9 fm.
Verðin eru frá 82.900.000 kr. – 149.000.000 kr.

Ath sýndar myndir eru af eins íbúð sem staðsett er á 4. hæð í húsinu. 
 
Allar innréttingar eru sérsmíðaðar hjá Gerher í Litháen sem er þjónustað af HBH Byggir ehf. Um er að ræða vandaða framleiðslu úr melamin efni frá Egger sem er sérstaklega endingagott og slitsterkt. Votrými eru flísalögð. Hurðir eru hvítar, sjá nánar í skilalýsingu.
 
Á lóðinni Grímsgötu 6. er eitt stigahús á fimm hæðum sem samtals hýsa 19 íbúðir. Því til viðbótar er bílageymsla með séreigna bílastæðum merktar 12 íbúðum. Önnur bílastæði eru utanhúss. Á lóðinni eru 24 bílastæði í óskiptri sameign allra íbúða á lóðinni, tvö þeirra verða sértstaklega merkt hreyfihömluðum. Á 1. hæð eru séreignageymslur fyrir þær íbúðir sem þeim fylgja ásamt sameiginlegri vagna- og hjólageymslu.
 
Áhersla var lögð á fallegt útlit húss sem reitinn í senn nútímalegan og spennandi. Sérstök áhersla hefur verið lögð á efnisval, áferðir og vandaðan frágang. Garður fyrir aftan húsið skapar svo vettvang fyrir skemmtilegt sameiginlegt svæði íbúa
 
Hitakerfi
Íbúðir eru hitaðar með gólfhita. Húsið er loftað með náttúrulegri loftræstingu opnun glugga og hurða. Í aflokuðum gluggalausum rýmum og er loftræsting .Í eldhúsum og votrýmum verður vélknúin loftræsting.
 
Gluggar:

Allir gluggar eru verksmiðjuframleiddir úr timbri /áli og glerjaðir með tvöföldu K-gleri eða sambærilegu. Útihurðar eru úr timbri. Gluggar sem liggja undir 60 cm frá gólfyfirborði skulu vera með öryggisgleri.
 
Lóð afhendist fullfrágengin. Sameiginleg lóð verður fullfrágengin skv. teikningum arkitekta. Snjóbræðsla er í helstu göngustígum á lóð. Snjóbræðsla utan við hús er í eigu íbúa og rekin af þeim
 
Að verkinu standa eftirtaldir aðilar:
Byggingaraðili er Reir Verk ehf. sem er öflugt byggingarfélag sem vinnur að fjölbreyttum fasteignaverkefnum ásamt því að vinna að ýmsum byggingaverkefnum á eigin vegum. Fyrirtækið leggur áherslu á að veita heildarlausnir í byggingaverkefnum, góða þjónustu og vandaða vöru.
 
Húsið er hönnuð af Kristni Ragnarsyni Arkitekt – Krark. NNE verkfræðistofa ehf. hannaði burðarvirki og lagnir. Voltorka sá um raflagna- og lýsingahönnun. Kristinn Ragnarsson Arkitekt sá um hönnum lóðar.
 
Áætluð afhending íbúða er frá og með 1. september 2024
 
Til áréttingar: Upplýst er um að lóðin verður byggingasvæði í einhvern tíma eftir að eignir eru afhendar og að lokaúttekt getur tafist þar til lóðin og öll mannvirki innan lóðar eru fullkláruð. Seljandi mun ábyrgjast lokaúttekt á eigninni en afsal kann að fara fram áður en lokaúttekt á eigninni/heildareigninni fæst.
 
Nánari upplýsingar veitir: 
Guðlaugur J. Guðlaugsson/Gulli löggiltur fasteignasali í síma 661-6056 / gulli@remax.
 
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.  Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef um lögaðila er að ræða) af heildar fasteignamati.
2.  Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3.  Lántökugjald lánastofnunar -  Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-