Fasteignasalarnir Vernharð Þorleifsson og Magga Gísladóttir kynna 2ja herbergja 79,3 fm íbúð á 3. hæð með suðursvalir í þessu eftirsótta húsi fyrir 65 ára og eldri á Seltjarnarnesi. Þjónustukjarni fyrir aldraða er á jarðhæðinni við Skólabraut 3–5. Margvísleg þjónusta er í boði og þar fer fram félagsstarf aldraðra. Þá geta íbúar keypt heitan mat í hádeginu alla daga vikunar í matsalnum að Skólabraut 5, eða fengið hann sendan heim. Einnig er hægt að fá hárgreiðslu, fótsnyrtingu og aðstoð við böðun. Húsvörður er í húsinu. Stuttur gangur er í sundlaug og líkamsrækt í Íþróttamiðstöð Seltjarnarness ásamt því að heilsugæsla, verslun og önnur þjónusta er í göngufæri. Frekari upplýsingar veita Vernharð Þorleifsson löggiltur fasteignasali í síma 699-7372 / [email protected] og Magga Gísladóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-7494 / [email protected] Kíktu í heimsókn til okkar á Facebook eða á Instagram
Eignin skiptist í anddyri, baðherbergi, eldhús, stofu og svefnherbergi. Nánari lýsing: Í anddyri er fataskápur og parket á gólfi. Baðherbergið er meðrúmgóða sturtu með handrið, tengi fyrir þvottavél, gott skápapláss, flísar á gólfi og veggjum. Stofan er björt, parketlögð og útgengt á suður svalir. Eldhúsið er rúmgott, gott skápapláss, korkflísar á gólfi. Íbúðinni fylgir 4,8 fm. geymsla á sömu hæð.