YFIRLIT
-
Tegund Einbýli
-
Stærð 256 M²
-
Herbergi 7
-
Stofur 2
-
Svefnherbergi 5
-
Baðherbergi 3
-
Inngangur Sér
-
Byggingarár 1992
-
Lyfta Nei
-
Bílskúr JÁ
LÝSING
Opið hús: 17. september 2024 kl. 17:30 til 18:00.Opið hús: Melhæð 5, 210 Garðabær. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 17. september 2024 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
RE/MAX, Guðlaug Jóna lgf. og Garðar Hólm lgf. kynna: Glæsilegt einbýlishús með bílskúr og aukaíbúð við Melhæð 5, Garðabæ. Frábær staðsetning í rótgrónu hverfi.
Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er eignin skráð 256,0 fm þar af bílskúr 62,3 en tæplega 30 fm af honum er aukaíbúð sem er í útleigu í dag. Hluti af rýminu er undir súð svo eignin er í raun stærri en fermetrar gefa til kynna. Eignin stendur innst i mjög snyrtilegri i botnlangagötu. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu svo sem leikskóla, grunnskóla, matvörubúð og Smáralind handan við hæðina.
Falleg eign með mikla möguleika sem vert er að skoða.
Nánari lýsing:
Aðalhæð:Forstofa er rúmgóð með flísum á gólfi. Þaðan er innangengt í bílskúr og þvottahús.
Þvottahús er með hvítri innréttingu með góðu skápa- og vinnuplássi. Þar er tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Mjög rúmgott þar sem hægt er að vera með þvottasnúrur eða auka skápa. Útgengt út í garð.
Bílskúr er skráður 62,3 fm en tæplega 30 fm af því er
aukaíbúð. Heitt og kalt vatn og hiti er í skúrnum. Mög rúmgóður og hátt til lofts.
Eldhús er bjart og rúmgott. Hvítar innréttingar með bakarofn í vinnuhæð, tengi fyrir tvöfaldan ísskáp og eyja með eldavél. Góður borðkrókur er í eldhúsi. Flísar á gólfi. Þaðan er gengið út á suðurverönd í góðu skjóli.
Borðstofa/Stofa er einstakelga bjart og rúmgott rými með mikilli lofthæð. Þar er í dag stór stofa öðrum megin og hinum megin í rýminu er einnig setustofa og borðstofa. Útgengt út í garð. Parket á gólfi.
Hjónasvíta er mjög rúmgóð með miklu skápaplássi og parketi á gólfi. Inn af hjónaherbergi er sér
baðherbergi með upphengdu salerni, sturtu, skáp og ofni. Flísar á gólfi og veggjum.
Herbergi II&III á aðalhæð eru einnig mjög rúmgóð. Annað þeirra er notað sem sjónvarpsherbergi í dag.
Baðherbergi er mjög rúmott með góðri innréttingu með miklu skápaplássi. Baðkar, sturta, upphengt salerni og góðir gluggar. Flísar á gólfi og veggjum.
Aukaíbúð er aftast í bílskúrnum og er sérinngangur í hana aftan við skúrinn. Rúmar vel góða svefnaðstöðu og eldhúsborð. Teppi er á gólfi. Eldunaraðstaða er í alrýminu. Baðherbergi er með salerni og góðri sturtu, flísar á gólfi og veggjum. Íbúðin var gerð upp fyrir 2 árum síðan.
Lóðin er með fallegum trjám og steyptu bílaplani. Hiti er í planinu. Lítill geymsluskúr er á lóðinni.
Efri hæð:Á efri hæð hússins eru 2 lítil herbergi og stórt hol. Auðvelt er að stækka herbegin til muna og er gera hæðina mjög góða fyrir t.d. unglinga. Parket er á gólfi og glugga ýmist kvistgluggar eða þakgluggar.
Allar nánari upplýsingar veita Guðlaug Jóna lgf. í síma 661-2363 eða [email protected] og Garðar Hólm lgf. í sima 899-8811 eða [email protected]