105, Reykjavík (Austurbær)

Kleppsvegur 2

69.900.000 KR
Fjölbýli
3 herb.
93 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 93 M²
  • Herbergi 3
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingarár 1959
  • Lyfta
  • Bílskúr NEI

LÝSING

Katrín Eliza Bernhöft löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX kynnir í einkasölu: KLEPPSVEG 2, 104 REYKJAVÍK
Glæsileg þriggja herbergja íbúð með miklu útsýni á 5.hæð í lyftuhúsi við Kleppsveg 2, stundum kölluð gamla prentarablokkin. Íbúðin hefur tvö rúmgóð svefnherbergi, nýlega uppgert eldhús og baðherbergi, stóra og bjarta stofu og borðstofu þar sem er útgengt á svalir. Aðstaða fyrir bæði þvottavél og þurrkara innan eignar. Stutt í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, matvöruverslanir, heilsugæslu, sundlaug, líkamsrækt, útivistarsvæði o.fl. Eign sem vert er að skoða!

Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 93,6 fm. Íbúðin er skráð 87,4 fm og geymsla í kjallara 6,2 fm. Eignin hefur fastanúmerið 201-6016, íbúð merkt 0501 og selst ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðaréttindum.

SMELLTU HÉR og þú færð SÖLUYFIRLIT SAMSTUNDIS

SMELLTU HÉR og skoðaðu þessa eign í 3-D
  • 3D - OPIÐ HÚS ÞEGAR ÞÉR HENTAR
  • Í 3D getur þú skoðað eignina hvar sem þú ert í tölvu, síma eða snjalltæki, ferðast auðveldlega á milli herbergja með því að nota músina, örvatakkana á lyklaborðinu eða fingur og kynnt þér rýmið betur.
  • Ekki þarf sérstakt forrit til að skoða eignina í 3D.  Ef þú lendir í vandræðum, ekki hika við að hafa samband við okkur.

Nánari lýsing:
Frá stigagangi
er komið inn í rúmgott anddyri með góðu skápaplássi.
Eignin er öll parketlögð nema baðherbergið er flísalagt. Mikið útsýni í allar áttir.
Eldhúsið er með fallegri hvítri innréttingu með góðu skápa- og vinnuplássi.
Stofan og borðstofan er bjart og fallegt samliggjandi rými með miklu útsýni. Þaðan er útgengt á svalir.
Hjónaherbergið er með góðu skápaplássi.
Svefnherbergi I er rúmgott.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og á veggjum við sturtu. Upphengt salerni, opin sturta með gleri og hvít innrétting í kringum vaskinn.
Geymsla fylgir eigninni og er hún á sameignargangi í kjallara.
Aðstaða fyrir bæði þvottavél og þurrkara innan eignar en einnig er sameignaraðstaða í kjallara þar sem þvottavélar og þurrkarar eru í eigu húsfélagsins.

Sameign:
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla. Sameiginlegt þvottahús í sameign. Á síðasta ári var sett ný lyfta frá Íslandslyftum.

Endilega hafið samband fyrir nánari upplýsingar eða til að bóka skoðun:
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. REMAX bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af löggiltum fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Starfsmanni fasteignasölunnar hefur ekki verið bent á aðra galla á eigninni en fram koma í söluyfirliti þessu. 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
·      Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
·      Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
·      Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunnar.
·      Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk