RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Einstaklega falleg og björt 118,9 fm. fjögurra herbergja íbúð á fyrstu hæð í góðu lyftuhúsi við Hörðukór 3 í Kópavogi. Íbúðin er 109,2 fm. og skiptist í forstofu, hol, opið eldhús til stofu og borðstofu með útgengt út á svalir með mjög fallegu útsýni, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Þvottahús er einnig innan íbúðar en sérgeymsla er staðsett í sameign um 9,7 fm.
Björt og vel skipulögð eign, staðsett í góðu og vinsælu hverfi í Kópavogi. Stutt er í leikskóla og grunnskóla, alla helstu þjónustu og verslanir.
Nánari lýsing: Anddyri er með góðum fataskápum. Parket á gólfum. Eldhús er mjög bjart og rúmgott. Viðar innréttingar með grárri borðplötu. AEG helluborð og vifta ásamt ofni í vinnuhæð. Parket á gólfum. Opið er inn til stofu og borðstofu með útgengt út á svalir með fallegu útsýni. Parket á gólfum. Svefnherbergi eru þrjú, mjög rúmgóð og með fataskápum. Parket á gólfum. Baðherbergi er með sturtu og baðkari, fallegri vaskinnréttingu með spegli. Flísar á gólfum og vegg að hluta. Þvottahús er innan íbúðar með góðri vaskinnréttingu. Flísar á gólfum. Sérgeymsla íbúðar er í sameign ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Bílastæði eru sameiginleg og aðgengi er að hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla.
Nánari upplýsingar gefur Guðrún Lilja Tryggvadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 867-1231, [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.