YFIRLIT
-
Tegund Fjölbýli
-
Stærð 86 M²
-
Herbergi 2
-
Stofur 1
-
Svefnherbergi 1
-
Baðherbergi 1
-
Inngangur Sameig.
-
Byggingarár 2006
-
Lyfta Já
-
Bílskúr NEI
LÝSING
RE/MAX og Jón Norðfjörð, löggiltur fasteignasali kynna rúmgóða og bjarta 2ja herbergja íbúð á fyrstu hæð í góðu fjölbýli með lyftu að Sóltúni 14.
Fallegar innréttingar frá Axis, gólfhiti, yfirbyggðar svalir og stæði í bílageymslu. Glæsilegt og vel við haldið fjölbýli sem er klætt að utan með viðhaldsléttri álklæðningu.Húsið er byggt af ÍAV árið 2006. Forhitari er fyrir hita- og neysluvatnslagnir. Næg bílastæði á bílaplani og góð aðkoma.
Frábær staðsetning miðsvæðis í Reykjavík þar sem stutt er í verslanir og þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Jón Norðfjörð löggiltur fasteignasali í síma 793-9919 eða á [email protected]Fáðu söluyfirlitið sent samstundis með því að smella hér
Hér er hægt að sjá eignina í 3D Nánari lýsing:Forstofa með góðum Axis fataskáp og harðparketi á gólfi.
Eldhúsið er með vönduðum innréttingum frá Axis til beggja handa, tengi fyrir uppþvottavél og aðgengi í þvottahús, harðparket á gólfi. Eldavél, bakarofn og ísskápur eru frá AEG.
Þvottahús er með flísum á gólfi, skolvaski, hillum og litlum opnanlegum glugga.
Borðstofa er í framhaldi af eldhúsinu og opið rými inn í stofu,
Stofan er rúmgóð og björt með útgengi út á yfirbyggðar suð-vestur svalir, harðparket er á gólfi.
Baðherbergið er rúmgott með glugga, allt flísalagt í hólf og gólf. Sturtuklefi, upphengt salerni og snyrtileg rúmgóð innrétting.
Svefnhergið er rúmgott með stórum Axis fataskáp, harðparket er á gólfi.
Geymsla er rúmgóð 6,7 fm. með hillum og er í kjallaranum.
Sameign er mjög snyrtileg, stór sameiginleg hjóla og vagnageymsla og Innangengt er í bílageymsluna úr sameign í kjallara.
Búið er að leggja tengingar fyrir rafbíla hleðslustöðvar í bílageymslunni.
Samkvæmt skráningu hjá Þjóðskrá Íslands er íbúðin samtals 86,2 fm. Þar af er íbúðin 79,5 fm, geymsla 6,7 fm og sérmerkt stæði í lokaðri bílageymslu.
Stigagangur og sameign voru máluð nú í vetur og einnig gólf við geymslur og hjólageymslu.
Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér eignina vel að innan sem utan og leita sér eftir atvikum ráðlegginga og aðstoðar sérfróðra manna við skoðun.
Nánari upplýsingar veitir Jón Norðfjörð fasteignasali í síma 793-9919 /
[email protected].
****
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð
og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.