110, Reykjavík (Árbær)

Brúarás 6

134.900.000 KR
Raðhús
7 herb.
204 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Raðhús
  • Stærð 204 M²
  • Herbergi 7
  • Stofur 3
  • Svefnherbergi 4
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sér
  • Byggingarár 1979
  • Lyfta Nei
  • Bílskúr

LÝSING

Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir raðhús á tveimur hæðum að Brúarás 6 í Árbænum í Reykjavík. Íbúðarrýmið er 169,1 m2 og bílskúr staðsettur framan við hús er 35,7 m2. Garðurinn er gróinn, framan við hús er hellulögn og hlaðið blómabeð og aftan við hús er viðarverönd og grasflötur. Hvort tveggja er afgirt. Hellulögn með snjóbræðslukerfi er nýleg. Húsið er einnig nýlega málað að utan sem og þak og þakkantur. Innandyra er búið að gera ýmsar endurbætur. Stutt er í leik- og grunnskóla. Einnig er afar stutt í íþróttamiðstöð Fylkis, sundlaug og útivistarsvæði í Víðidal og Elliðaárdal.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / [email protected] 

Eignin skiptist í forstofu, gestasalerni, eldhús, borðstofu, stofu, sjónvarpshol, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu og bílskúr. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 204,8 m2.

**HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI. KÍKTU Í HEIMSÓKN !
 
Söluyfirlit má nálgast hér
Nánari lýsing neðri hæðar:
Neðri hæð er nýlega flotuð og með nýju hitalagnakerfi undir nýju parketi, allt nema gestasalerni.

Forstofa er inn af hellulagðri stétt með snjóbræðslu. Gengið er inn í parketlagða forstofu með eikarskápum er ná upp í loft. Inni í forstofurými er gestasalerni. 
Gestasalerni er flísalagt í hólf og gólf. Dökkar gólfflísar og ljósar á veggjum. Salerni, vaskur og veggfestur speglaskápur.
Eldhús er með "U" laga eikarinnréttingu sem nær upp í loft. Innrétting var nýlega sprautuð svört. Helluborð, vifta, bakaraofn og stæði fyrir ísskáp og uppþvottavél. Léttur veggur milli eldhúss og stofu var nýlega tekinn niður og bætt við innréttingu/eyju sem hægt er að sitja við.
Sjónvarpshol er inn af stofufrými og getur einnig nýst sem herbergi eða borðstofa. Opnanlegt fag út í garð.
Borðstofa og stofa er stórt og bjart opið rými með gluggum til vesturs. Útgengi er út í garð.
Stigi upp á aðra hæð er með nýju teppi. Undir stigapalli er opið rými. Efst uppi í loftinu er hljóðeinangrandi dúkur sem minnkar hljóð milli hæða.
Geymsla/lagnarými er milli eldhúss og forstofu. Mikið skápapláss. Parket á gólfi.
Garður bak við hús er með steyptri stétt, afgirtri viðarverönd, grasfleti og gróðir.

Nánari lýsing efri hæðar:
Eikarparket er á allri efri hæðinni að undanskildu baðherbergi og þvottahúsi.

Herbergi I er stórt með millilofti. Útgengi er úr því herbergi út á svalir til vesturs.
Herbergi II er einnig rúmgott og er opið milli þessa herbergis og næsta, herbergi III.
Herbergi III er inn af herbergi II. Skv. teikningu er hurðarop í það herbergi inn af sjónvarpsholi (bak við viðarplötur/hljóðvistarplötur) og hægt að opna að nýju.
Herbergi IV er stærsta herbergið. Nýlegir léttir gráir fataskápar.
Baðherbergi er nýtt og flísalagt í hólf og gólf. Gólfhitakerfi. Einstaklega vel heppnað með bæði baðkari og walk-in sturtuklefa. Upphengt salerni, krómhandklæðaofn og brún innrétting undir handlaug og svartri borðplötu. Spegill er laus og eru tvær rafmagnsinnstungur á vegg ofan við borðplötu og tengi er fyrir veggljós. Ný einangrun í lofti og nýjar loftaplötur.
Sjónvarpshol er einnig uppi á stigapalli. Parket á gólfi. 
Þvottahús er rúmgott með hvítri innréttingu á einum vegg. Milli efri og neðri skápa eru hvítar flísar. Málað gólf. Opanlegt fag.
Þakrými að hluta er nýtt sem geymslurými í dag, en væri hægt að nýta sem íbúðarrými eins og einhverjir hafa gert í lengjunni. Þar er nokkuð hátt til lofts undir mæni. Aðgengi er um lúgu með stiga á holi efri hæðar. 

Bílskúr er með bílskúrshurð og umgengnishurð sem vísa út á götu. Garðmegin er einnig hurð sem hægt er að ganga inn um. Í dag er bílskúr nýttur sem geymsla en áður nýtt sem íbúðarrými/stúdíóíbúð. Til staðar er salerni og vaskur. Rafmagnshleðslustöð utan á bílskúr getur fylgt.
Garður er skemmtilega hannaður og vel hirtur. Búið er að leggja fyrir heitum potti út frá stofu og undir pall. Lítið viðhald fylgir þar sem stór hluti af garði er hellulagt svæði og pallur að hluta. Snjóbræðsla er í bílaplani og hellusvæði þaðan og að íbúðarhúsi. Ruslatunnusvæði er undir bíslagt milli bílskúra. 

Fyrirhugað fasteignamat árið 2025: 111.850.000 kr.

-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-