YFIRLIT
-
Tegund Raðhús
-
Stærð 163 M²
-
Herbergi 4
-
Stofur 1
-
Svefnherbergi 3
-
Baðherbergi 2
-
Inngangur Sér
-
Byggingarár 1954
-
Lyfta Nei
-
Bílskúr JÁ
LÝSING
Opið hús: 01. október 2024 kl. 17:00 til 17:30.Opið hús: Álfhólsvegur 26, 200 Kópavogur. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 1. október 2024 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
RE/MAX - Brynjar Ingólfsson MSc / lgf. kynnir: Fallegt 4 herbergja raðhús með frábærum garði bakvið húsið. Eign sem vert er að skoða.
Eignin er skráð hjá FMR sem 163,6 m² þar af er bílskúrinn 30 m².
- Gólfhiti á neðri hæðinni
- Sólríkur pallur með heitum pott, gróðurhúsi og matjurtagarði
- 3 rúmgóð svefnherbergi
- Rúmgóður bílskúr og stór geymsla
- Fordæmi fyrir viðbyggingum. Einnig möguleiki að færa eldhúsið í stofuna og gera svefnherbergi 4 þar sem eldhúsið er núna.
Viðhald síðastliðn ár:
- Rúður á suðurhlið endurnýjaðar 2017 og 2020
- Þak yfirfarið og málað 2022
- Þak á bílskúrum, brenndur dúkur 2018
- Þakkantur (viðgerð og málun) klárað í október og greiðir seljandi hlut eignarinnar
SKOÐAÐU EIGNINA Í 3D HÉR
Nánari lýsing - Jarðhæð: Komið er inn í fallegt flísalagt anddyri með góðum fataskápum. Við tekur bjart og opið alrými sem tengir fallega saman aðalhæðina. Fallegar ljósar flísar eru á neðri hæðinni og hiti í gólfi.
Stofa og borðstofa eru opnu rými í suður hluta húsins og er útgengt úr borðstofu út í fallegan og sólríkan suður-garð.
Garðurinn hefur verið hannaður á glæsilegan máta en þar er stór verönd með heitum potti og fallegum blómabeðum. Garðurinn leynir á sér og er stærri en hann virðist við fyrstu sýn.
Af
verönd er gengið út á efri hluta garðsins en þar er fallegt og viðhaldslítið blómabeð, gróðurhús og matjurtagarður.
Eldhús er með u- laga innréttingu og góðum borðkrók.
Gestasalerni er við stigann. Vaskur og klósett.
Efri hæð:Komið er upp teppalagðan stiga.
Baðherbergi flísalagt með veggföstu salerni, innréttingu og stórum flísalögðum sturtuklefa með rennihurðum. Góð, upphækkup, aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Herbergi 1 er með parket á gólfi og snýr í norður átt. Mjög fallegt útsýni.
Herbergi 2 er stórt með parket á gólfi og fataskáp. Útsýni út í garðinn.
Herbergi 3, hjónaherbergið er með parket á gólfi og stórum fataskáp sem nær alla leið upp í loft. Útsýni út í garðinn.
Geymslur eru vestan megin við húsið (hægra hlið hússins).
Bílskúr - Rafmagnsopnari með fjarstýringu, upphitaður, heitt og kalt neysluvatn. Gluggi fyrir loftun.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali í síma 666 8 999 / [email protected]