YFIRLIT
-
Tegund Fjölbýli
-
Stærð 128 M²
-
Herbergi 4
-
Stofur 1
-
Svefnherbergi 3
-
Baðherbergi 1
-
Inngangur Sameig.
-
Byggingarár 2006
-
Lyfta Já
-
Bílskúr NEI
LÝSING
Opið hús: 22. september 2024 kl. 13:00 til 13:30.Opið hús: Drekavellir 18, 221 Hafnarfjörður, Íbúð merkt: 01 06 01. Eignin verður sýnd sunnudaginn 22. september 2024 milli kl. 13:00 og kl. 13:30.
RE/MAX og Ingi Þór Löggiltur fasteignasali kynna: Drekavelli 18, 221 Hafnarfjörður.
Vel skipulögð og rúmgóð fjögurra herbergja, 128,1fm íbúð á sjöttu hæð með glæsilegu útsýni, auk sér bílastæðis í bílakjallara.Eign skiptist í: forstofu/gang, þvottahús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, eldhús, stofu/borðstofu, sérgeymslu í kjallara, sérmerkt bílastæði ásamt hlutdeild í sameign,
Nánari lýsing. Komið er inn í forstofu/gang með flísum við inngang og fataskáp. Á gangi er parket. Þvottahús er rúmgott, með ljósum flísum á gólfi, vaskaborði og hvítum geymsluskápum. Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hluta, baðkari, stakstæðum sturtuklefa, þverspónaðri, viðarlitaðri innréttingu, vegghengdu salerni og handklæðaofni. Svefnherbergi eru þrjú, öll með parketi á gólfum og þverspónuðum fataskápum, sérlega rúmgóðum í hjónaherbergi. Hálf opið er á milli eldhúss og stofu/borðstofu. Eldhús innrétting er sérlega rúmgóð, með efri og neðri skápum á tveimur veggjum, gufugleypi, gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu. Span helluborði og Whirlpool bakara ofni. Á gólfi í eldhúsi er parket. Stofa/borðstofa er sérlega bjart og skemmtilega rúmgott rými, á gólfi er parket. Gengið er út á stórar svalir úr stofu/borðstofu sem skarta glæsilegu útsýni þar sem Esjan og Bláfjöll blasa við í austur og norðaustur. Sérgeymsla í kjallara og gert er ráð fyrir hleðslustöð á sérmerktu bílastæði í bílageymslu.
Rúmgóð íbúð í snyrtilegu fjölbýli, sérlega vel staðsett eign á völlunum, Örstutt labb er yfir götu í Hraunvallaskóla og leikskóla. Öll helsta þjónusta í göngufæri, Verslanir, líkamsræktarstöðvar og íþróttasvæðið Ásvöllum skammt undan.
Nánari upplýsingar veitir Ingi Þór Löggiltur fasteignasali [email protected]/698-4450