300, Akranes

Jaðarsbraut 33

59.900.000 KR
Hæð
5 herb.
144 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Hæð
  • Stærð 144 M²
  • Herbergi 5
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 4
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingarár 1959
  • Lyfta Nei
  • Bílskúr

LÝSING

Opið hús: 22. september 2024 kl. 13:00 til 13:30.

Opið hús verður að Jaðarsbraut 33, 300 Akranesi sunnudaginn 22. september kl. 13:00 - 13:30. Guðbjörg og Gylfi fasteignasalar sýna eignina.

Guðbjörg Helga lgf. og Gylfi Jens lgf. hjá RE/MAX kynna í efstu hæð að Jaðarsbraut 33, 300 Akranes í sölu:.
Vel skipulögð og björt 5 herbergja 144,7 fm hæð með bílskúr og suðursvölum í þríbýlishúsi. Húsið er klætt með garðastáli en bílskúrinn steniklæðningu. Húsið stendur við Langasand með óhindrað töfrandi sjávarútsýni til suðurs. Hér er ekki hægt annað en sofa vel með róandi náttúruhljóðum hafsins. Íbúðin er mjög vel staðsett miðsvæðis í bænum, og er íþróttasvæðið og Akraneshöllin við enda götunnar, grunnskóli, verslanamiðstöð, sjósundsaðstaða, fjaran á Langasandi, og fleira innan seilingar. Fasteignamat 2025 verður 51.800.000 kr. Uppgefin stærð hæðar er 114,4 fm og bílskúrs 30,3 fm. Eignin getur verið laus 1. nóvember nk.

 **SÆKTU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST**

** SKOÐAÐU EIGNINA BETUR Í ÞRÍVÍDD (3D) OG HALTU ÞITT EIGIÐ OPIÐ HÚS -SMELLTU HÉR´**

Inngangur er sameiginlegur með miðhæð og gengið upp 2 hæðir. Flísar eru á gólfi við inngang, stigagangur er snyrtilegur með teppi á gólfi. Efsti stigapallur nýtist af þessari íbúð eingöngu, þar sem inngengi er í íbúðina og rúmgóð sérþvottahús/geymslu íbúðar á hæðinni.
Eldhús: Afar rúmgott og bjart eldhús með L-laga lakkaðri innréttingu og flísum á milli skápa. Flísar á gólfi. Frístandandi AEG eldavél með keramikhelluborði og tengi fyrir uppþvottavél.Stór og rúmgóður borðkrókur sem getur nýst m.a. fyrir stórt borðstofu/eldhúsborð. Tveir gluggar með útsýni til sjávar.
Stofa: Rúmgóð með útgengi á suðursvalir. Magnað útsýni, Sé staðið í miðri stofu og horft út, er eins og maður sé úti á hafi. Harðparket
Svefnherbergi 1: Innaf stofu (var áður hluti stofu), en núverandi eigendur bjuggu það til, var áður hluti stofu. Magnað sjávarútsýni. Harðparket.
Svefnherbergi 2: Rúmgott með glugga, harðparket
Svefnherbergi 3: Rúmgott með glugga, harðparket.
Svefnherbergi 4: Upprunalega hjónaherbergi en nýtt sem gott barnaherbergi í dag. Parketlagður endaveggur sem nýtist eins og höfuðgafl fyrir rúm. Harðaparket á gólfi.
Gangur: Góður PAX skápur með rennihurðum er á einum vegg sem nýtist fyrir fatnað og fleira.
Baðherbergi: Nýleg hvít innrétting, nýtt klósett gólffest, flísar á gólfi og kringum baðkar sem er með sturtuaðstöðu.
Þvottahús/geymsla: Gengið inn af stigapalli á hæðinni. Stálvaskur, skápur. Lakkað gólf. 
Bílskúr: Miðjubílskúrinn. Sjálfvirkur opnari, hitaður með affalli, 3ja fasa rafmagn. Steniklæðning er utan á bílskúrnum. 

Framkvæmdasaga í eignartíð núverandi eigenda
2022  Hurð fram á stigapall endurnýjuð, sett brunavarnarhurð.
2022  Herbergi útbúið í hluta stofu og dregið rafmagn í vegg og sett ný hvít hurð og karmur. 
2022. Eldhúsinnrétting lökkuð pastelbleik og öll íbúðin máluð. 

Fyrrum framkvæmdasaga skv. eldra söluyfirliti er núverandi eigendur keyptu íbúðina
(birt til upplýsingar, en núverandi fasteignasalar og seljendur geta ekki borið ábyrgð á þessum eldri upplýsingum).
xxxx   Hurðir íbúðar endurnýjaðar í eik.  Allt gler á suðurhlíð hefur verið endurnýjað og opnanlegt fag (búið að skipta um eitt og hitt fylgir) 
2021   Klæðning á vesturhlið endurnýjuð.
2020   Parket á gólfum endurnýjað.
2020   Ofnalagnir í stofu endurnýjaðar.
xxxx    Tröppur nýlega steyptar.
xxxx.   Ofnlagnir endurnýjaðar að hluta.
2019.  Þakjárn, þakkantur og rennur endurnýjað.
2018   Skápur á gangi endurnýjaður.
2015   Skolplagnir undir húsi og stétt endurnýjað.


Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar: 
Guðbjörg Helga löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur s. 897 7712 og [email protected]
Gylfi Jens löggiltur fasteignasali og lögmaður s. 8225124 og [email protected]