220, Hafnarfjörður

Álfaskeið 90

71.900.000 KR
Fjölbýli
4 herb.
134 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 134 M²
  • Herbergi 4
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingarár 1966
  • Lyfta Nei
  • Bílskúr

LÝSING

Opið hús: 23. september 2024 kl. 18:00 til 18:30.

Opið hús: Álfaskeið 90, 220 Hafnarfjörður, Íbúð merkt: 01 03 03. Eignin verður sýnd mánudaginn 23. september 2024 milli kl. 18:00 og kl. 18:30.

RE/MAX Kynnir: Rúmgóða og bjarta 4ja herbergja íbúð á þriðju hæð með bílskúr. Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands 134,6 fm og þar af bílskúr 23,7 fm
Allar nánari uppls gefur Páll lögg, fasteignasali í síma 861-9300 eða [email protected] og Úlfar Hrafn lögg,fasteignasali í síma 6238747 eða [email protected]

Nánari lýsing: Forstofa með parketi á gólfi og forstofuskáp. Rúmgóð stofa og borðstofa með parketi á gólfi, gluggum til suður og hurð út á suðursvalir. Eldhús með flísum á gólfi, viðar innréttingu með góðu skápaplássi, uppþvottavél, borðkrók og glugga. Svefnherbergisgangur með parketi á gólfi. Hjónaherbergi með parketi á gólfi . Tvö barnaherbergi með parketi á gólfi. Upprunalegt baðherbergi með flísum á gólfi, flísum í hólf og gólf, innréttingu, tengi fyrir þvottavél. 

Sérgeymsla er í kjallara ásamt sameiginlegri hjólageymslu og sameiginlegu þvottahúsi.

Bílskúrinn er með rafmagni, hita, gönguhurð og rafdrifnum opnara á innkeyrsluhurð.

Ytra byrði hússins var tekið í gegn árið 2022 þar sem húsið var sprunguviðgert og málað, ásamt því að gluggar, gler, opnanleg fög og svalahurðar var endurnýjað og/eða viðgert sem þurfa þurfti. Bílskúrar teknir í gegn á þessu ári 2024 háprýstiþveignir allur laus múr fjarlægður og múrað aftur ,tjörupappi lagður á alla skúralengjuna.Flasningar settar á kantinn sem snýr að bílastæðum á bakhlið skúrana eru gluggar sem var ákveði að loka með krossvið vegna rúðubrota 
Skúrarnir eru nýmálaðir. Búið er að leggja stofnlagnir með heitu og köldu vatni í skúrana einnig er búið að taka þriggja fasa rafmagn inn í lengjuna fyrir bílahleðslutæki á einum stað,það á eftir að leggja taug milli skúra. Skolpið var endurnýjað fyrir nokkrum árum síðan.

Staðsetningin er góð, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu svo sem leik- og grunnskóla sem og verslun og íþrótta og tómstundastarf í Kapplakrika. 

Allar nánari uppls gefur Páll lögg, fasteignasali í síma 861-9300 eða [email protected] og Úlfar Hrafn lögg,fasteignasali í síma 6238747 eða [email protected]

- Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
- Ertu í söluhugleyðingum viltu frítt söluverðmat ekki hika við að vera í sambandi sími 861-93300 Páll og eða pallbremax.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.