200, Kópavogur

Skjólbraut 11D

114.900.000 KR
Fjölbýli
3 herb.
144 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 144 M²
  • Herbergi 3
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sér
  • Byggingarár 2023
  • Lyfta Nei
  • Bílskúr NEI

LÝSING

Opið hús: 22. september 2024 kl. 15:30 til 16:00.

Opið hús: Skjólbraut 11D, 200 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd sunnudaginn 22. september 2024 milli kl. 15:30 og kl. 16:00.

Guðmundur Þór Júlíusson og Ástþór Reynir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:

***Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning, Sýnum samdægurs***

Björt og rúmgóð 3ja til 4ja herbergja íbúð á frábærum stað í góðu fjölbýlishúsi með sérinngang að Skjólbraut 11D, 200 Kópavogur. Eignin telur 144,3 fm og skiptist íbúðin í forstofu, hjónaherbergi með fataherbergi, svefnherbergi til viðbótar, tvö baðherbergi annað baðherbergið er innaf hjóna svítu og er með sturtu, alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu. Útgengt út á góða verönd til suðurs. Eigninni tilheyrir 30 fm. sérafnotaflötur í garði við suðurhlið hússins samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu.

Bókið skoðun hjá Gumma Júl í síma 858-7410 eða með tölvupósti á netfangið [email protected] eða á Ástþór Reyni í síma 899-6753 eða með tölvupósti á netfangið [email protected]

Nánari lýsing:

Gengið er niður vinstri hlið húsins forsteyptur stigi með hita í.
Sérinngangur.
Forstofa: Með fataskáp og flísum á gólfi með skáp.
Svefnherbergi I: Rúmgott og bjart með skáp.
Hjónaherbergi II: Bjart og rúmgott,  með góðu fataherbergi. Innaf hjónaherbergi er sér baðherbergi með flísalagðri sturtu og glerhlið. Innréttingu frá HTH og upphengt salerni. Flísalagt gólf og veggir.
Eldhús/stofa og borðstofa mynda alrými. Útgengt út á suðurpall frá stofu.
Eldhús: Bjart og með fallegri innréttingu frá HTH, spanhelluborð, ofn, innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur frá Bræðurnir Ormsson 
Baðherbergi/þvottaherbergi: Innrétting frá HTH, upphengd salerni, flísalagt gólf og að hluta veggir. Sturtuþil úr hertu gleri frá Byko. Tengi fyrir þvottavél.
Geymsla:  Er inní íbúðinni.  Flísalagt gólf.

Einstök staðsetning í grónu hverfi í næsta nágrenni við Sundlaug Kópavogs. 

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir: 

Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða [email protected]
Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma 899-6753 eða [email protected]


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.