113, Reykjavík (Grafarholt)

Kristnibraut 49

74.900.000 KR
Fjölbýli
3 herb.
111 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 111 M²
  • Herbergi 3
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingarár 2003
  • Lyfta
  • Bílskúr NEI

LÝSING

Opið hús: 24. september 2024 kl. 18:00 til 18:30.

Opið hús: Kristnibraut 49, 113 Reykjavík, Íbúð merkt: 101. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 24. september 2024 milli kl. 18:00 og kl. 18:30.

RE/MAX / Brynjar Ingólfsson kynnir: Falleg og björt þriggja herbergja útsýnisíbúð á jarðhæð við Kristnibraut í Grafarholti. 

-  Glæsilegt útsýni yfir Reykjavík.
-  Um 30 m² pallur.
-  Rúmgóðar svalir með möguleika á svalalokun.
-  Hiti er í stéttinni allt í kringum húsið og er húsið steinað að mestum hluta.
-  Grunnskóli og leikskóli í göngufæri.  
-  Mikið af góðum gönguleiðum.
-  Búið er að fara í múrviðgerðir, mála slétta fleti hússins ásamt gluggum, þakjárn og þakkant og olíubera útihurðir. Einnig var er búin að sílanbera steinaða fleti.
-  Þetta er einstaklega skemmtileg eign sem vert er að skoða.

SKOÐAÐU EIGNINA Í 3D HÉR


Nánari lýsing:
Inngangur er sameiginlegur en alls eru átta íbúðir í stigaganginum.
Komið er inn í forstofu með eikarfataskáp og skóhillum. Við tekur herbergjagangur.
Svefnherbergin eru tvö talsins, rúmgott hjónaherbergi með stórum fataskáp og barnaherbergi.
Útgengt er á timburverönd sem snýr í suður frá hjónaherbergi. Veröndin er með háum skjólveggjum með lýsingu og er hún um 30 m².
Eldhúsið er með fallegri eikarinnréttingu, háfi, keramik helluborði, innbyggðri uppþvottavél og borðkrók. Öll tækin eru frá AEG.
Stofa og borðstofa eru samliggjandi en útgengt er á svalir sem snúa í suður frá stofu.
Þvottaherbergi er innan íbúðar með flísum á gólfi, eikarskáp, vinnuborði með skolvaski og plássi fyrir þvottavél og þurrkara.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, vaskinnréttingu, baðkari með sturtu og handklæðaofni.
Íbúðin er með gegheilu eikarparketi á gólfi að undanskildu baðherbergi og þvottaherbergi.

Sérgeymsla fylgir (9,7 fm) ásamt hlutdeild í sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
 
Virkilega falleg eign með útsýni, verönd og svölum í Grafarholti í Reykjavík.

Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali í síma 666 8 999 / [email protected]