203, Kópavogur

Austurkór 145

184.900.000 KR
Einbýli
6 herb.
241 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Einbýli
  • Stærð 241 M²
  • Herbergi 6
  • Stofur 2
  • Svefnherbergi 4
  • Baðherbergi 3
  • Inngangur Sér
  • Byggingarár 2018
  • Lyfta Nei
  • Bílskúr

LÝSING

Opið hús: 22. september 2024 kl. 13:00 til 14:00.

Opið hús: Austurkór 145, 203 Kópavogur. Eignin verður sýnd sunnudaginn 22. september 2024 milli kl. 13:00 og kl. 14:00.

RE/MAX /  Júlían J. K. Jóhannsson löggiltur fasteignasali (sími 823 2641 & [email protected]) kynnir: Glæsilegt, vandað og vel skipulagt 241,8 m2 viðhaldslétt, einbýlishús á einni hæð við Austurkór 145 í Kórahverfinu í Kópavogi.  Húsið er vel staðsett í nágrenni við fallegt útivistarsvæði. Fjögur rúmgóð svefnherbergi, tvö baðherbergi, stórar stofur, sjónvarpssrými, geymsla, þvottahús og bílskúr. Aukin lofthæð er í húsinu. Samkvæmt FMR er íbúðarhlutinn 207,4 m2 auk 34 m2 bílskúrs. Húsið er einangrað að utan og klætt með flísum frá Vídd. 260 cm lofthæð er í öllu húsinu fyrir utan 320 cm yfir eldhúsi. Rationell ál/tré gluggar.


Bókið skoðun í síma 823-2641 eða á [email protected] - Júlían J. K. löggiltur fasteignasali



3D - SKOÐAÐU HÚSIÐ Í ÞRÍVÍDDARUPPTÖKU HÉR -  3D


FÁÐU SENT SÖLUYIRLIT YFIR EIGNINA HÉR.


Nánari lýsing:
Forstofa með opnum fataskáp (gert ráð fyrir rennihurðum, fylgja ekki). 
Barnaherbergi er inn af forstofu með opnum fataskáp.
Alrýmið sem samanstendur af eldhúsi, sjónvarpsrými og stofu er með útgengi út á hellulagða verönd.
Eldhúsið er mjög vel útfært með vandaðri innréttingu frá JKE Design. Háglans skápaveggur með mjög miklu skápaplássi og stórum tækjaskáp. Reykt eik er á stórri eyju með kvarts-steini og miklu skúffuplássi. Tveir ofnar og stórt span helluborð. Flísar á gólfum.
Hjónaherbergi með opnum fataskáp og útgengi út á timburpall með skjólveggjum, og heitum potti. Inn af hjónaherbergi er baðherbergi með sturtu.  
Barnaherbergi með opnum fataskáp.
Barnaherbergi með opnum fataskáp.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi og vandaðri innréttingu með spegli fyrir ofan, stór sturta. Upphengt salerni og handklæðaofn.
Þvottahús með epoxy-gólfi og hvítri innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Bílskúrinn er innangengur frá þvottahúsi með heitu og köldu vatni. Epoxy-gólf og rafdrifinn bílskúrshurðaropnari. 

Verönd með hellulögðum veröndum, timburpalli, skjólveggjum og heitum potti. 


Öll blöndunartæki eru sérpöntuð með reyklitaðri áferð frá Grohe. Innbyggð tæki í sturtum frá Grohe. Salernin eru frá Duravit. Handklæðaofnar frá Svedbergs.  Allar innihurðir eru Ringo sem eru 223 cm á hæð frá Birgisson með hvíttaðri eikaráferð. Anddyri og baðherbergi eru með flísalögðu gólfi og í kringum sturtu með 60*60 cm flísum frá Birgisson. Free@Home rafkerfi með innbyggðu ljósa- og hitastýringarkerfi frá Rafport er í öllu húsinu. Öllum ljósum er hægt að fjarstýra með appi í síma. Öll ljós eru LED, innfeld í alrými. Dimmerar á öllum ljósum. Luxaflex gluggatjöld eru í allri eigninni, Duette í eldhúsi, stofu og hjónaherbergi og rúllugardínur í barnaherbergjum.


Lóðin er um 830 m2 með upphituðu hellulögðu bílaplani með stæði fyrir 6 bíla, skjólgirðingum, ásamt timburpalli að baka til með heitum potti. Búið er að tengja hitastýringuna við Free@Home kerfið.



Bókið skoðun í síma 823-2641 eða á [email protected] - Júlían J. K. löggiltur fasteignasali


Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0.5% - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.-