YFIRLIT
-
Tegund Fjölbýli
-
Stærð 145 M²
-
Herbergi 4
-
Stofur 1
-
Svefnherbergi 3
-
Baðherbergi 1
-
Inngangur Sameig.
-
Byggingarár 2013
-
Lyfta Já
-
Bílskúr NEI
LÝSING
Guðmundur Þór Júlíusson og Ástþór Reynir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:Glæsileg 4ra herbergja íbúð á frábærum stað í góðu fjölbýlishúsi með lyftu í Sjálandshverfi í Garðabæ. Eignin telur 145,7 fm auk sér bílastæðis með hleðslustöð í lokaðri og upphitaðri bílageymslu í kjallara hússins. Skipulag telur forstofu, þrjú svefnherbergi, rúmgott baðherbergi, þvottaherbergi, rúmgóða stofu og borðstofu með útgengi á rúmgóðar svalir sem snúa í suð-vestur, sjónvarpshol og eldhús með útgengi á svalir er snúa í norður.
Bókið skoðun hjá Gumma Júl í síma 858-7410 eða með tölvupósti á netfangið [email protected] eða á Ástþór Reyni í síma 899-6753 eða með tölvupósti á netfangið [email protected]Nánari lýsing eignar:Forstofa er flísalögð og með rúmgóðum fataskápum.
Þvottahús er innan íbúðar með innréttingu og aðstöðu fyrir þvottavél & þurrkara. Flísar á gólfi.
Eldhús er flísalagt. Falleg viðarinnrétting með uppþvottavél, ísskáp, helluborði, háf og bakaraofn er í vinnuhæð. Flísalagt er á milli skápa
Sjónvarpshol er inn af eldhúsi með útgengi á rúmgóðar svalir.
Stofa og borðstofa er rúmgóð og björt með fallegum og björtum gluggum. Úr stofu er útgengi á rúmgóðar svalir sem snúa í suð-vestur, frá stofu er fallegt útsýni út á ylströndina.
Svefnherbergi I er parketlagt með rúmgóðum skápum.
Svefnherbergi II er parketlagt með rúmgóðum skápum.
Hjónaherbergi er parketlagt og með sér fataherbergi með rúmgóðum fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, baðkar og walk-in sturta. Innrétting með hvítum vask, spegli og góðu skápaplássi.
Sérgeymsla er í sameign sem telur 8,8fm
Með íbúðinni fylgir mjög stórt bílastæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu sem og hleðslustöð. Sérgeymsla er í sameign sem telur 8,8fm ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu í sameign. Stigagangur er mjög snyrtilegur með flísum og teppi.
Um er að ræða frábæra staðsetningu í Sjálandshverfi í Garðabæ þar sem mjög stutt er í leikskóla og grunnskóla. Þá eru fallegar göngu- og hjólastígaleiðir um hverfið meðfram sjónum og frábært útivistarsvæði í nágrenni.
Húsið er byggt af traustum byggingaraðila, BYGG, árið 2013.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir: Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða
[email protected]Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma 899-6753 eða
[email protected]Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.