221, Hafnarfjörður

Dalsás 6

92.900.000 KR
Fjölbýli
5 herb.
123 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 123 M²
  • Herbergi 5
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 4
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingarár 2014
  • Lyfta Nei
  • Bílskúr NEI

LÝSING

Opið hús: 22. september 2024 kl. 15:00 til 15:30.

Opið hús: Dalsás 6, 221 Hafnarfjörður, Íbúð merkt: 03 02 04. Eignin verður sýnd sunnudaginn 22. september 2024 milli kl. 15:00 og kl. 15:30.

Berglind Hólm lgfs. og RE/MAX kynna: Sérlega glæsileg 5 herbergja íbúð á efstu hæð (2.hæð) með sérinngangi, stæði í bílageymslu og stórkostlegu útsýni í góðu fjölbýlishúsi í Ásahverfinu í Hafnarfirði. Utanáliggjandi stigagangur er upp að íbúðinni og eru því gæludýr leyfð í húsinu. Útsýni er einstaklega gott yfir Heiðmörkina og út eftir fjallahringnum, yfir Hafnarfjörðin o galla leið út á Seltjarnarnes. Í dag er eignin skipulögð sem 4ra herbergja en auðvelt er að bæta herberginu við aftur.
 
Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða [email protected]
 
Nánari lýsing eignar:

Gengið er upp utan á liggjandi tröppur upp að íbúðinni sem er á 2.hæð hússins (efstu hæð). Þaðan er gengið inn um sérinngang inn í íbúðina sem er á vestur enda hússins.
Forstofa: Komið er inn í forstofu með fallegum kork flísum á gólfi og góðum fataskáp með rennihurðum sem nær upp í loft og veggja á milli.
Eldhús: Eldhús er rúmgott með góðri innréttingu í L + eyju. Opið er frá eldhúsinu yfir í borðstofuna og setustofuna. Innréttingin er í ljósgráu eikar útliti með ljósri borðplötu. Gott skápapláss er í innréttingunni og fallegar kork flísar eru á gólfi.
Borðstofa + setustofu: Borðstofa og setustofa eru saman í opnu rými með eldhúsinu. Fallegt harðparket er á gólfi. Glæsilegt útsýni er út um gluggana sem nær yfir Heiðmörk, Hafnarfjörð og alla leið vestur yfir að Seltjarnarnesi svo eitthvað sé nefnt.
Sjónvarpshol / Barnaherbergi: Í vinkil inn af stofunni er opið yfir í rými sem er á teikningum skráð barnaherbergi. Í dag er það nýtt sem sjónvarpsherbergi og hluti af stofunni. Auðvelt er að loka því af aftur ef þörf er fyrir fjórða svefnherbergið.
Baðherbergi: Baðherbergið er rúmgott með fallegum ljósum flísum á gólfi og á veggjum. Stór sturta er beint á gólf með glerskilrúmi. Eikarinnrétting er undir vaski og tveir hvítir skápar eru á vegg sitthvoru megin við stóran spegil. Handklæðaofn er á vegg á móti sturtu.
Þvottaherbergi: Þvottaherbergið er í sérrými inn af baðherberginu. Stór skápur með rennihurðum nær veggja á milli þar sem hægt er að loka fyrir vélarnar og nýta sem góðan geymsluskáp og kústaskáp. Flísar eru á gólfi.
3 x svefnherbergi: Svefnherbergin eru þrjú í dag en á teikningum eru þau skipulögð fjögur. Hjónaherbergi er með stórum og góðum skápum með rennihurðar. Barnaherbergin tvö eru hlið við hlið og léttur veggur er á milli þeirra þar sem gólfefnin eru undir vegg og því auðvelt að opna á milli og útbúa eitt stórt herbergi fyrir þá sem það vilja.
Geymsla: Geymslan sem fylgir íbúðinni er skráð 9,5 fm og við stæðið í bílakjallaranum.
Stæði í lokaðri bílageymslu: Stæðið sem fylgir íbúðinni er sérstætt frá hinum stæðunum og er stærsta stæðið í bílageymslunni. Breidd stæðisins er 4,55 m.
 
Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða [email protected]