112, Reykjavík (Grafarvogur)

Álfaborgir 9

72.900.000 KR
Fjölbýli
4 herb.
96 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 96 M²
  • Herbergi 4
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingarár 1997
  • Lyfta Nei
  • Bílskúr NEI

LÝSING

Opið hús: 26. september 2024 kl. 17:00 til 17:30.

Opið hús: Álfaborgir 9, 112 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 03 04. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 26. september milli kl. 17:00 og 17:30, verið velkomin.

RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Mjög falleg og björt 96,4 fm. fjögurra herbergja endaíbúð með sérinngangi á þriðju og efstu hæð í snyrtilegu fjölbýlishúsi við Álfaborgir 9, Grafarvogi.  Íbúðin sjálf er 93,4 fm. og skiptist í forstofu, eldhús, stofu með útgengt út á suður svalir, þrjú rúmgóð svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Sérgeymsla er staðsett í sameign 3,0 fm. að stærð ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Sérmerkt bílastæði fylgir íbúð.

KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU EIGN Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

FÁÐU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

Góð eign á eftirsóttum og barnvænum stað í Grafarvoginum. Stutt er í alla helstu þjónustu og verslanir, eign sem vert er að skoða.


Nánari lýsing:
Forstofa
er flísalögð, mjög snyrtileg og með forstofuskáp fyrir innan með góðu fataplássi, dúkur þar á gólfi.
Stofa er í opnu og björtu rými, parket á gólfi. Útgengt er út á góðar suður svalir.
Eldhús er opið við stofu, nýlega uppgert. Fallegar filmaðar innréttingar með flísum á milli skápa. Nýlegur vaskur, blöndunartæki, ofn og helluborð (2023).  Góður eldhúskrókur með stórum og björtum gluggum. Vandaðar flísar frá Vídd á gólfum.
Svefnherbergin eru þrjú, öll mjög rúmgóð og björt, parket á gólfum. Við barnaherbergin er rými við glugga á gangi sem vel væri hægt að nýta sem vinnuaðstöðu eða leikhorn.
Baðherbergi er með flísalagt gólf og vegg að hluta. Falleg hvít innrétting með speglaskáp. Baðkar er með sturtuaðstöðu. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla er staðsett á jarðhæð í sameign um 3,0 fm. að stærð. Í sameign er einnig sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Bílastæði er sérmerkt, fyrir framan hús.
Garður er sameiginlegur, stór og gróinn með leiktækjum.
Heimilt að vera með gæludýr.

Gott húsfélag og virkt samstarf. Húsið var viðgert 2018 þar sem þak var yfirfarið, skipt um rennur og frárennsli, skipt um glugga á suðurhlið hússins og svalahurðir, þakrennur á suðurhlið, húsið málað, svalagólf sílanborin og máluð, viðgerðir á svalahandriðum og útihurðir lakkaðar. 

Nánari upplýsingar gefur Guðrún Lilja Tryggvadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 867-1231, [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.