221, Hafnarfjörður

Eskivellir 11

67.500.000 KR
Fjölbýli
3 herb.
90 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 90 M²
  • Herbergi 3
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingarár 2020
  • Lyfta
  • Bílskúr NEI

LÝSING

Opið hús: 01. október 2024 kl. 17:00 til 17:30.

Opið hús: Eskivellir 11, 221 Hafnarfjörður, Íbúð merkt: 01 02 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 1. október milli kl. 17:00 og 17:30.

RE/MAX og GuSðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu:  Einstaklega falleg og björt þriggja herbergja 90,2 fm. endaíbúð á 2. hæð í nýlegu lyftuhúsi við Eskivelli 11, Hafnarfirði.  Íbúðin sjálf er 83,3 fm. og skiptist í forstofu, opið eldhús til borðstofu og stofu með útgengt út á suður svalir, tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Sérgeymsla er staðsett í sameign um 6,9 fm. ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.  

Góð eign á eftirsóttum stað þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, sundlaug, heilsurækt, verslanir, útivistarsvæði og fallegar gönguleiðir.   

KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU EIGN Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

FÁÐU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

Nánari lýsing:

Um ræðir vel skipulagða endaíbúð með glugga á þrjá vegu, því einstaklega björt og ,,prívat" með sérinngangi af svölum. Einnig snýr íbúð frá stórum umferðargötum.
Forstofa er flísalögð með góðum fataskápum.
Eldhús er opið til borðstofu og stofu, mjög bjart og með fallegum stílhreinum innréttingum, innfelldum ísskáp og uppþvottavél, spanhelluborði, bökunarofni og viftu. Parket á gólfum.
Borðstofa og stofa eru í björtu og opnu rými með útgengt út á suður svalir.  Parket á gólfum.
Tvö rúmgóð svefnherbergi með fallegum hvítum fataskápum, parket á gólfum.
Baðherbergi er mjög rúmt með fallegum hvítum innréttingum og speglaskáp, upphengdu salerni og handklæðaofni. Góð sturta með glerþili. Flísar á gólfum.
Þvottahús er mjög rúmt með vaski, góðum vegghengdum skápum og flísar á gólfum.
Sérgeymsla er staðsett í sameign um 6,9 fm. ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Bílastæði
sameiginleg fyrir framan hús.

Nánari upplýsingar gefur Guðrún Lilja Tryggvadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 867-1231, [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.   2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.  3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.   4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.