Framkvæmdir síðustu árin á yrtra byrði: - Allir gluggar á austurhlið hússins 2013 - Klætt að norður og austurhlið Spóahóla 2-6 á árunum 2015-2018 - Austurhlið tekin í gegn 2022-2023. Svalir steyptar, múrviðgerðir, húsið málað. Skipt um glugga á austur- og norðurhliðum. - Nýtt þakjárn 2020 - Virkt húsfélag. Fyrirhugaðar framkvæmdir eru að setja upp snjógildrur (inneign í hússjóði fyrir því). Mála og teppaleggja stigagang (þegar hússjóður á fyrir því).
Nánari lýsing: Gengið er inn í íbúðina frá sameign. Flísar á gólfi. Eldhúsið er nýlegt. Tveir ofnar í vinnuhæð. Helluborð og háfur. Innbyggð uppþvottavél. Borðkrókur er við enda eldhússins. Stofan er björt og snýr í vestur átt. Útgengt er út á pall frá stofunni. Svefnherbergi 1 er rúmgott með parket á gólfi. Svefnherbergi 2 (hjónaherbergið) er stórt með parket á gólfi og stórum fataskáp. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með þvottaaðstöðu (einnig í sameign). Baðkar með sturtuaðstöðu. Gluggi fyrir loftun.
Sameign: Lítur vel út en verður líklega málað og teppalagt í haust/vetur. Sameiginlegt þvottahús (hver með sína vél). Hjóla og vatnageymsla ásamt sér geymslu.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir: Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali í síma 666 8 999 / [email protected]