220, Hafnarfjörður

Háholt 5

65.900.000 KR
Fjölbýli
3 herb.
109 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 109 M²
  • Herbergi 3
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingarár 1991
  • Lyfta Nei
  • Bílskúr NEI

LÝSING

Opið hús: 29. september 2024 kl. 16:00 til 16:30.

Opið hús: Háholt 5, 220 Hafnarfjörður, Íbúð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd sunnudaginn 29. september 2024 milli kl. 16:00 og kl. 16:30.

RE/MAX kynnir: Rúmgóða og bjarta 3 herbergja endaíbúð á 1 hæð. Íbúðin er með góðum suðursvölum ásamt góðu útsýni. Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands 109,1 fm og þar af sérgeymsla í kjallara 7,8 fm. Sameign er snyrtileg. Sameiginleg bílastæði eru fyrir framan hús. Gæludýrahald er leyft í stigagangnum.

Allar nánari upplýsingar gefur Úlfar Hrafn Pálsson lögg,fasteignasali í síma 6238747 og [email protected]


Nánari lýsing:
Forstofa: með fatahengi, flísar á gólfi
Hol/sjónvarpshol: rúmgott með harðparketi á gólfi.
Stofa: rúmgóð og björt í alrými með eldhúsi og harðparketi á gólfi.  Útgengt úr stofu á góðar suðursvalir.
Eldhús: er í alrými, stúkað af með lágum vegg. Innrétting með bakaraofni í vinnuhæð, nýlegu helluborði, viftu og góðu skápaplássi. Harðparket á gólfi. Úr eldhúsi er fallegt útsýni.
Hjónaherbergi: mjög rúmgott með harðparketi á gólfi. 
Svefnherbergi: rúmgott með harðparketi á gólfi og góðum fataskápum.
Baðherbergi: Innrétting með góðu skápaplássi. Flísar á gólfi. Handlaug og nýlegt salerni. Sérsturta og baðkar.
Þvottahús: er innaf eldhúsi með flísum á gólfi og vinnuborði með vaski.
Geymsla: í kjallara 7,2 fm.
Nánasta umhverfi: Örstutt í skóla, leikskóla, golfklúbb keilis, íþróttamiðstöð Hauka og Ásvallalaug/Suðurbæjarlaug. Verslun og þjónusta í næsta nágrenni og stutt út á stofnbrautir.  

Eftirfarandi framkvæmdir hafa átt sér stað á vegum húsfélagsins að sögn seljanda: 
- Múrframkvæmdir
- Húsið málað (2018)
- Skipt út hluta af gluggum (2018)
- Lagt fyrir nokkrum hleðslustöðvum

Skv. seljendum hafa eftirfarandi endurbætur átt sér stað í íbúðinni:
- Harðparket og flísar í forstofu (2021)
- Innihurðir og hurðarhúnar (2021) 
- Baðinnrétting handlaug (2021)
- Sturta og blöndunartæki (2023)   
- Svalahurð (2018)
- Salerni (2020)
- Rofar og tenglar 2020
- Blöndunartæki í eldhúsi, þvottahúsi og blöndunartæki með hitastýringu fyrir baðkarið (2021)


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.  
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: