221, Hafnarfjörður

Reyniberg 7

139.900.000 KR
Einbýli
5 herb.
219 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Einbýli
  • Stærð 219 M²
  • Herbergi 5
  • Stofur 2
  • Svefnherbergi 4
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingarár 1988
  • Lyfta Nei
  • Bílskúr

LÝSING

Opið hús: 01. október 2024 kl. 17:00 til 17:30.

NÁNARI UPPLÝSINGAR FÆRÐU HJÁ GUÐNÝJU ÞORSTEINS Í SÍMA 7715211 EÐA [email protected]
SMELLTU HÉR OG SJÁÐU EIGNINA Í 3D (ekki er þörf á sérsöku forriti til þess)


RE/MAX, í samstarfi við Guðnýju Þorsteins löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Fallegt og fjölskylduvænt einbýlishús að Reynibergi 7 í Setberginu, Hafnarfirði. Húsið er á einni hæð og býður upp á fjögur rúmgóð svefnherbergi auk tvöfalds bílskúrs. Samkvæmt fasteignaskrá er íbúðin 164,3fm og bílskúrinn 55fm, sem gerir heildarstærð eignarinnar 219,5fm.

SMELLTU HÉR OG FÁÐU SÖLUYFIRLIT SAMSTUNDIS

Eignin skiptist í eftirfarandi rými:
Forstofu, sjónvarpshol, herbergisgang, 4 svefnherbergi, baðherbergi, 2 geymslur, þvottahús, eldhús með borðkróki, stofu, borðstofu, auk tvöfalds bílskúrs.

Nánari lýsing:
Forstofa:
Flísalögð með góðum forstofuskápum.
Herbergis gangur: Er bjartur og leiðir inn í helstu rými hússins.
Sjónvarpshol: Gengið er niður eina tröppu inn í rúmgott sjónvarpshol með útgangi á sólpall.
Sólpallur: Er með skjólveggjum, lerki á dekki.
Eldhús: Er með góðu skápa- og skúffuplássi, tvöfaldir bakaraofnar (5ára) í vinnuhæð, tengi fyrir uppþvottavél og borðkrókur.
Stofa / borðstofa: Eru í björtu og opnu rými með aukinni lofthæð og útgangi út á sólpall.
Baðherbergi: Er flísalagt í hólf og gólf með bæði sturtu og baðkari, handklæðaofni og góðu skápaplássi.
Svefnherbergi: Eru 4, rúmgóð með fataskápum og parketi á gólfum.
Geymslur: Eru 2, önnur inn af herbergisgangi og hinn inn af þvottahúsi.
Þvottahús: Er rúmgott með lítilli geymslu og útgangi út í garð. Þar er opnanlegur gluggi ásamt skolvaski.
Bílskúr: Er innangengur af þvottahúsi, 55fm að stærð, með tveimur hurðum (önnur rafdrifinni).
Lóð og garður: Húsið stendur á 826,8fm skjólgóðri og gróinni lóð. Garðurinn er með fallegum trjágróðri ásamt grasfleti. Stór hellulögð innkeyrsla með hitalögn er fyrir framan bílskúrinn.

Viðhald á húsi:

Þak yfirfarið fyrir um 10 árum 
2010 - Skipt um 10stk rúður
2022 - Skipt var um ofn í sjónvarpsholi
2022 - Sólpallur endurnýjaður og stækkaður
Reyniberg 7 er fallegt hús staðsett í rólegum botnlanga. Virkilega snyrtileg eign með fallegum grónum garði. Í göngufæri er skóli, leikskóli, heilsugæsla, apótek, matsölustaðir, matvöruverslanir, íþróttahús og golfvöllur. Stutt er í náttúru og skemmtilegar gönguleiðir.

Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Guðný Þorsteins löggiltur fasteigna- og skipasali s: 771-5211 eða á netfangið [email protected].

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Re/Max því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.  
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, 69.900 kr. m.vsk.