210, Garðabær

Kinnargata 45

67.900.000 KR
Fjölbýli
2 herb.
73 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Fjölbýli
  • Stærð 73 M²
  • Herbergi 2
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 1
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingarár 2022
  • Lyfta Nei
  • Bílskúr NEI

LÝSING

Guðmundur Þór Júlíusson og Ástþór Reynir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:

Björt og rúmgóð tveggja herbergja íbúð á frábærum stað með sérinngang í Urriðaholtinu í Garðabæ að Kinnargötu 45. Eignin telur 73,2fm með sér geymslu í sameign. Skipulag telur, Forstofu, svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi, ásamt alrými með eldhúsi, borðstofu, stofu og útgengi á rúmgóðar svalir.

Bókið skoðun hjá Gumma Júl í síma 858-7410 eða með tölvupósti á netfangið [email protected] eða á Ástþór Reyni í síma 899-6753 eða með tölvupósti á netfangið [email protected]

Nánari lýsing:
Anddyri: Parket á gólfi, fataskápur.
Eldhús: Parket á gólfi, gott skápa- og borðpláss, innréttingin er frá Voke III, framhliðar eru matt gráar að lit, borðplötur eru sérsmíðaðar úr hvítæðóttum Quarts stein með undirlímdum vaski úr stáli. Eldhústæki eru frá Electrolux að undanskildum háfum sem eru af gerðinni Elica. Innbyggður ísskápur, frystir og uppþvottavél fylgir.
Alrými: Parket á gólfi, opið og bjart rými, útgengt út á svalir.
Hjónaherbergi: 14,2 fm, parket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi: Gráar flísar 60x60 að stærð á gólfi og veggjum að hluta, upphengt salerni, handklæðaofn og sturta, sturtutæki eru hitastýrð og innbyggð. Innréttingin er frá Voke III, framhliðar matt gráar að lit, borðplötur eru sérsmíðaðar úr hvítæðóttum Quarts stein með undirlímdum vaski.
Þvottahús: Innaf baðherbergi, rennihurð á milli rýma, innrétting undir þvottavél og þurrkara framleidd af Voke III grá að lit.
Svalir: 8,7 fm.
Geymsla: 9 fm í sameign.
Hjóla- og vagnageymsla: Í sameign.
Bílastæði eru á lóð og búið er að koma fyrir tengi fyrir hleðslustöð.


Um er að ræða 15 íbúða fjölbýli á þremur hæðum með aðalinngangi á 2. hæð. Húsið er í Urriðaholti í Garðabæ sem er einstakt og nýstárlegt hverfi. Umkringt óspilltri náttúru en um leið í nálægð við góðar samgönguæðar og sérlega vel staðsett innan höfuðborgarsvæðisins. Í jaðri hverfisins eru helstu útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins, ósnortin náttúra og einn glæsilegasti golfvöllur landsins.

Byggingaraðili: Þarfaþing hf.
Aðalhönnuður hússins: Arkís arkitektar ehf.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir: 

Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða [email protected]
Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma 899-6753 eða [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.