270, Mosfellsbær

Laxatunga 144

112.500.000 KR
Raðhús
4 herb.
128 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Raðhús
  • Stærð 128 M²
  • Herbergi 4
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingarár 2017
  • Lyfta Nei
  • Bílskúr

LÝSING

Opið hús: 30. september 2024 kl. 17:30 til 18:00.

Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali kynnir nýlegt, vandað og vel skipulagt 4ra herbergja 128.3fm endaraðhús á einni hæð, þar af er 24,3fm innbyggður bílskúr í Tunguhverfinu í Mosfellsbæ. Aukin lofthæð. Gólfhiti í öllu húsinu. Búið er að setja upp afgirtar verandir framan og aftan við hús. Heitur pottur. Flott útsýni. 
 
Eignin skiptist í
Forstofu, stofu/borðstofu, eldhús,  hol/gang, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, bílskúr með millilofti og tvær verandir/palla. 

Nánari lýsing á eign: 
Forstofa með fataskápum, rennihurðir frá Ikea, skóskápur frá Ikea, parketflísar á gólfi, úr forstofu er innangengt í bílskúr. 
Stofa/borðstofa er opin og björt með aukinni lofthæð, innfeld dimmanleg Led lýsing, útgengt út á afgirta ca. 67fm vestur-verönd með heitum potti út frá stofu, parketflísar á gólfum.
Eldhús er opið inn í stofu/borðstofu, Ikea innrétting með efri og neðri skápum, flísar á milli skápa, innbyggð uppþvottavél og ísskápur frá Zanussi, innfeld dimmanleg Led lýsing, parketflísar á gólfum, útgengt á ca 23 fermetra sólpall og þaðan út í rúmgóðan garð.
Hol/herbergjagangur inn af honum eru þrjú rúmgóð svefnherbergi, öll með innfeldri dimmanlegri Led lýsingu.
Hjónaherbergi með opnum fataskápum frá Ikea, parketflísar á gólfi
Barnaherbergin eru tvö, fataskápar frá Ikea, parketflísar á gólfum.
Baðherbergi algerlega endurnýjað 2022, flísalagt í hólf og gólf með flísum frá Birgisson, sturtuklefi með glerskilrúmi (innbyggð tæki), innrétting með skápum frá HTH, vegghengt klósett, handklæðaofn, innfelld lýsing og lýsing á köntum á niðurteknu lofti. 
Bílskúr flísalagður, innrétting með þvottavél og þurrkara auk vasks, góðar geymsluhillur með skúffum, milliloft með miklu geymsluplássi, bílskúrshurðaopnari, hleðslustöð fyrir rafbíl. 
Gólfhiti er í öllu húsinu. Allar innihurðir (nema eldvarnar í bílskúr) endurnýjaðar 2024. Heitur pottur (hitaveitu) fyrir aftan hús. Stór lóð með grasi, limgerði í vexti í kringum allt húsið. Verkfæraskúr á palli bakatil
Bílaplan framan við húseign er upphitað. Hellulögð innkeyrsla. Uppsett hleðslustöð. Snjóbræðsla.

Allar nánari upplýsingar veitir: Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali í síma  662-6163 eða [email protected]

Húsið er staðsett í Vogahverfinu, nýlegu fjölskylduvænu hverfi í Mosfellsbænum. Hverfið er við íþróttamiðstöðina að Varmá, Varmárskóla og miðbær Mosfellsbæjar er í nokkurra mínútna fjarlægð. Skólabíll í skólann og heim í Varmárskóla.
Leirvogstunguskóli, leikskóli stendur við Laxatungu 70. Stutt í útiveru, gönguleiðir, upplýstan battavöll, körfuboltavöll, laxaveiði, hestamannahverfi Harðar, flugklúbb Mosfellsbæjar o.s.frv. 

Um skoðunarskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. RE/MAX fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlufall af fasteignamati. 1.Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal. 3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. 4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá 69.900kr