540, Blönduós

Urðarbraut 15

61.500.000 KR
Einbýli
7 herb.
197 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Einbýli
  • Stærð 197 M²
  • Herbergi 7
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 6
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sér
  • Byggingarár 1975
  • Lyfta Nei
  • Bílskúr

LÝSING

Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali (s:662-6163/[email protected]) kynnir fallegt tveggja hæða einbýlishús á Blönduósi. Eignin er 164,4fm auk 32,9fm bílskúrs, samtals 197,3fm. Sex svefnherbergi. Sólpallur með heitum potti. 910fm lóð. Fasteignamat 2025 verður 47.750.000.

Eignin skiptist í: 
Neðri hæð, forstofa, hol, stofa, eldhús, baðherbergi, tvö svefnherbergi og þvottahús. Efri hæð, hol, fjögur herbergi og salerni (wc og vaskur).

Neðri hæð:
Forstofa með flísum á gólfi, fatahengi, hiti í gólfi.
Þvottahús inn af forstofu með flísum á gólfi, innrétting fyrir þvottavél og þurrkara, góðir skápar, hiti í gólfi. Þvottahúsið var stækkað og endurnýjað árið 2021.
Hol úr forstofu með hringstiga upp á efri hæð, Hydro-corkur á gólfi
Stofa á hægri hönd, björt með stórum gluggum, Hydro-corkur á gólfi.
Eldhús er rúmgott og bjart með innréttingu frá Stíganda, flísar á milli, t.f. uppþvottavél, vifta, borðkrókur, korkur á gólfi. 
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, IKEA innrétting, handklæðaofn, sturta, opnanlegur gluggi, útgengt á sólpall með heitum potti.
Svefnherbergin eru tvö á neðri hæðinni, bæði með harðparketi á gólfum.

Efri hæð:
Komið er upp á efri hæð úr hringstiga í hol með stórum glugga.
Herbergin á efri hæðinni eru fjögur, þrjú þeirra eru mjög rúmgóð, fataskápar í þremur þeirra, spónaparket.
Salerni með klósetti og vaski, þakgluggi.
Hvítmálaður panill er á veggjum og lofti.
Garðurinn er stór, góður sólpallur sem umlykur hálft húsið. 
Bílskúr með steyptu gólfi, gryfja, einangraður og klæddur að innan, gönguhurð að framan, fjarstýrð innkeyrsluhurð, innangengt af sólpalli fyrir aftan hús. 

Búið er að skipta um glugga í stofu, þvottahúsi, svefnherbergjum á neðri hæð og bílskúr.

Allar upplýsingar um eignina veitir Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali í síma 662 6163 eða [email protected]
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0.5% - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 59.900.